Færslur: 2016 Desember
15.12.2016 13:19
Álsey VE 250. TFOL.
14.12.2016 10:44
Hafþór NK 76.
S.Ú.N tekur
Hafþór NK 76 á leigu
13.12.2016 10:35
2025. Bylgja VE 75. TFHQ.
Bylgja VE 75
Nýtt fiskiskip bættis við flota Eyjamanna 14. mars s.l., en
þann dag afhenti Slippstöðin hf. á Akureyri m/s Bylgju VE 75, sem er nýsmíði
stöðvarinnar nr. 70. Skipið er smíðað sem skuttogari og er með búnað til
vinnslu og frystingar á flökum. Skipið er hannað af Slippstöðinni hf. og hófst
smíðin fyrir nokkrum árum án kaupanda. Á s.l. hausti, er smíði skipsins var
lokið að mestu að undanskilinni tækjaniðursetningu og ýmsum frágangi, samdi
núverandi eigandi um kaup á skipinu. Bylgja VE 75 er annað skipið sem
Slippstöðin afhendir á skömmum tíma til Vestmannaeyja, hið fyrra var Þórunn
Sveinsdóttir, afhent í júlí á s.l. ári. Hin nýja Bylgja VE 75 kemur í stað
Bylgju VE 75 (sk.skr. nr. 1443), 149 rúmlesta stálfiskiskips, sem smíðuð var í
Stálvfk hf. árið 1976 og skemmdist í bruna á s. I. hausti. Bylgja VE 75 er í
eigu Matthíasar Óskarssonar í Vestmannaeyjum, sem jafnframt er skipstjóri.
Yfirvélstjóri á skipinu er Einar Axel Gústafsson.
Ægir. 3 tbl. 1 mars 1992.
12.12.2016 10:55
B. v. Apríl RE 151. LCHN.
Botnvörpungurinn Apríl RE 151 var smíðaður hjá Cook Welton & Gemmell Ltd í Beverley á Englandi árið 1920. 339 brl. 600 ha. 3 þennslu gufuvél. 42,70 x 7,66 x 3,29 m. Smíðanúmer 370. Eigandi var Fiskveiðahlutafélagið Ísland í Reykjavík frá 21 apríl árið 1920. Skipið fórst á leið til Íslands frá Englandi 1 desember 1930. Togarinn var þá að koma úr söluferð og átti eftir um 80 sjómílna siglingu til Vestmannaeyja þegar síðast heyrðist til hans. Áhöfnin, 18 manns, þar af 2 farþegar fórust með skipinu.
![]() |
B.v. Apríl RE 151 með trollið á síðunni. (C) Guðbjartur Ásgeirsson. |
![]() |
B.v. Apríl RE 151 á veiðislóð. Ljósmynd í minni eigu. |
Íslandsfélagið
Samið um smíði tveggja togara í Beverley
Þeir Hjalti og Þorsteinn fóru svo til Beverley og sömdu þar um smíði skipanna. Ekki voru bæði skipin smíðuð í einu. Öðru var lokið á árinu 1919, og var það skírt Apríl. Hitt var smíðað 1920, og var það nefnt Maí. Skipasmíði var afardýrt á þessum árum, því nú var einmitt sem óðast verið að koma upp skipum í stað þeirra sem sökkt hafði verið í stríðinu. Svo var og það, að mjög var óséð um allt verðlag og öll viðskipti. Hjalti beitti sér því ákveðið á móti því, að Íslandsfélagið réðist í skipakaup að svo komnu máli, en hann varð að algerum minnihluta í félaginu.
Togarinn Apríl talinn af
Við verðum að vona að svo sjé, að skipaskoðunin og eftirlitið sjé örugt og tryggt, En fyrst svo er, þá er það líka segin saga, að samskonar sorgaratburðir sem hjer endurtakast. Hve oft? Hvenær næst? Það veit enginn. Vonandi verður nú stundarbið uns næsta stórslys ber að höndum.
Reykvíkingar hafa orð á sjer fyrir hjálpfýsi. Mörg heimili standa nú á flæðiskeri. Jólin fara í hönd. Hjer þarf skjóta hjálp og mikla. Reykvíkingar! Minnist þeirra, sem mist hafa ástvini sína. Rjettið hjálparhönd. Munið, að enginn veit hver verður hjálparþurfi næst.
Vikuna sem leið, fjaraði út öll von um það, að togarinn ,.Aprí!" væri ofan sjávar. þá daga lifði fjöldi manns í þessum bæ milli vonar og ótta, lifði angistar og kvíðafulla daga, er enduðu í sárum söknuði, þegar síðasti vonarneistinn dó út um það að, að nokkrir þeirra átján, sem voru með Apríl væri á lífi. Þann 1. desember síðastliðinn hefir togarinn "Apríl" farist fyrir sunnan land. Með skipinu voru 18 manns, 16 manna skipshöfn og 2 farþegar. Skipið var á leið hingað frá Englandi og vissu menn það seinast til þess að það var komið upp undir Ísland, átti um 80 sjómílur ófarnar til Vestmannaeyja að kvöldi sunnudags 30. nóvember. Þá brast á veðrið mikla, og í því hefir skipið sennilega farist, sokkið niður þar sem það var komið.
Þeir sem fórust með togaranum voru;
Jón Sigurðsson, skipstjóri. Hann átti heima á Holtsgötu 13 hjá foreldrum sínum, 29 ára að aldri, fæddur 13. júlí 1901 á Bug í Fróðárhreppi. Hann var ókvæntur, en trúlofaður Siglin Grímsdóttur, Sigurðssonar frá Nikhól í Mýrdal. Hann tók við skipstjórn "Apríls" í ágústmánuði síðastliðnum.
Jörgen Pjetur Hafstein. Fæddur 15. nóvember 1905, að Óspakseyri. Foreldrar Marino sýslumaður Hafstein og Þórunn Eyjólfsdóttir; bæði á lífi. 5 systur og 2 bræður. Tók stúdentspróf vorið 1925 og embættispróf í lögum vorið 1929, með 1. einkunn. Fékk utanfararstyrk úr Sáttmálasjóði til framhaldsnáms vorið 1930. Fór utan í maí s.l. og hafði lokið námi í Lundúnum. Kosinn í bæjarstjórn Reykjavíkur í janúar 1930. Hann var farþegi með skipinu.
Ólafur Helgi Guðmundsson, 1. stýrimaður. Hann var sonur Guðmundar Guðnasonar skipstjóra, Bergstaðastræti 26 og konu hans Mattínu Helgadóttur. Hann var fæddur 3. ágúst 1903, ókvæntur og átti heima hjá foreldrum sínum.
Magnús Brynjólfsson, 2. stýrimaður, átti heima á Óðinsgötu 6. Hann var elsti maður á skipinu, 55 ára að aldri, sonur Brynjólfs Bjarnasonar í Engey. Magnús lætur eftir sig konu, Helgu Stefánsdóttur og tvö börn. Einar Eiríksson, 1. vjelstjóri, átti keima á Bragagötu 21. Hann var fæddur 10. nóv. 1898 í Selkoti í Reykjavík. Hann lætur eftir sig konu, Svanhildi Sigurðardóttur, 3 böm og eitt fósturbarn.
Jón Ó. Jónsson, 2. vjelstjóri. átti heima á Njálsgötu 23. Hann var fæddur 7. maí 1892 að Hróaldstöðum í Vopnafirði. Hann lætur eftir sig konu, Margrjeti Ketilbjarnardóttur og 4 börn öll ung. Margrjet er systir Eggerts Ketilbjarnarsonar sem einnig fórst með Apríl.
Friðrik Theodór Theodórsson, loftskeytamaður, átti heima á Marargötu 7, hjá foreldrum sínum Ólafi Theodórs snikkara og konu hans Sigríði Bergþórsdóttur, sem er systir Hafsteins Bergþórssonar skipstjóra. Theodór var 27 ára og ókvæntur. Frá honum komu seinustu kveðjurnar frá "Apríl" er hann hafði loftskeytasambandi við "Otur " á sunnudadagskvöldið 30. nóvember.
Þórður Guðjónsson, bryti, til heimilis á Lokastíg 28 A. Hann var fæddur 12. desember 1903. Faðir hans heitir Guðjón Egilsson og á heima á Bjargarstíg 3, og eru þar tvær systur Þórðar. Hann var ókvæntur. Mun hafa verið ólögskráður á skipið.
Einar Sigurbergur Hannesson, aðstoðarmatsveinn, var fæddur 17. september 1913. Hann átti heima hjá foreldrum sínum, Hannesi Stígssyni og Olafíu Einarsdóttur á Laugaveg 11. Þau hjón eru Skaftfellingar og eiga nú 6 syni á lífi, flesta yngri en Einar.
Kjartan Reynir Pjetursson, háseti, átti heima á Ásvallagötu 13. Hann var fæddur 11. janúar 1907 í Reykjavík. Foreldrar hans eru Pjetur Sigurðsson og Gróa Jónsdóttir og eiga þau hjón heima á Vesturgötu 51. Kjartan lætur eftir sig konu, Valgerði Kr. Sigurgeirsdóttur og barn á fyrsta ári.
Pjetur Ásbjörnsson, háseti, var eini maður á skipinu, sem ekki átti lögheimili í Reykjavík. Hann átti heima í Ólafsvík. var 26 ára að aldri, Iætur eftir sig konu, Ingibjörgu Olafsdóttur frá Sandi og þrjú börn kornung. Foreldrar hans eru Ásbjörn Eggertsson og Ragnheiður Eyjólfsdóttir, bæði um sjötugt.
Einar Axel Guðmundsson, háseti. Hann var fæddur 25. júlí 1910 í Reykjavík og átti heima hjá foreldrum sínum á Framnesvegi 1 A. var ókvæntur.
Páll Kristjánsson, háseti, var fæddur 4. október 1906 að Fossi í Staðarsveit í Snæfellsnessýslu. hann var ókvæntur og átti heima á Frakkastíg 24.
Sigurgísli Jónsson, háseti, var fæddur 11. desember 1892 að Skagnesi í Mýrdal. Hann átti heima á Ljósvallagötu 10 og lætur eftir sig konu, Hólmfríði Jónsdóttur, 4 börn og fósturbarn, hvert öðru yngra, hið elsta. á 12. ári og hið yngsta á 1. ári.
Kristján Jónsson kyndari, var fæddur 20. apríl 1887 á Ísafirði. Átti hann nú heima á Bergstaðastræti 1 hjer í bænum, var ókvæntur, en hafði fyrir þungu heimili að sjá.
Magnús Andrjesson, háseti, var fæddur 18. apríl 1896 á Dagverðarnesi á Skarðsströnd. Átti nú heima á Marargötu 3, hjer í bænum, hann var ókvæntur.
Eggert Snorri Ketilbjarnarson, kyndari, var fæddur 5. september 1909 að Sauðhól í Dalasýslu. Hann var ókvæntur og átti nú heima hjá móður sinni, Halldóru Snorradóttur, á Kárastíg 8. Misti hún þarna í sjóinn samtímis efnilegan son sinn og tengdason, Jón O. Jónsson, 2. vjelstjóra.
Ragnar Júlíus Kristjánsson, fæddur 16. ágúst 1905, átti heima á Holtsgötu 10. Faðir hans er Kristján Sæmundsson, salernahreinsari. Ragnar var kyndari á ,,GuIItoppi", en varð eftir af skipinu í Englandi í seinustu ferð þess og tók sjer þess vegna far með "Apríl".
Morgunblaðið. 13 desember 1930.
11.12.2016 09:34
1664. Emma VE 219. TFUN.
Togbáturinn Emma VE 219 kom til Vestmannaeyja í byrjun árs
eftir verulegar endurbætur í Póllandi. Skipið var m.a lengt um 5,5 metra og er
nú 28,94 metrar að lengd. Eftir lenginguna rúmast 128 fiskikör í lest á móti 68
körum áður. Skipið var smíðað hjá TCZEW Yard í Póllandi árið 1988 og teiknað
hjá Ráðgarði Skiparáðgjöf hf, sem einnig sá um hönnun breytinganna nú. Skipið
er í eigu Emmu ehf í Vestmannaeyjum sem
er að jöfnu í eigu skipstjórans Kristjáns Óskarssonar og Arnórs Páls
Valdimarssonar 1. vélstjóra. Stýrimaður og afleysingaskipstjóri er Óskar
Kristjánsson.
Emma VE var lengd um rúma 5,5 metra hjá skipasmíðastöðinni Intermarine í
Stetting í Póllandi. Lunningar á efra þilfari voru hækkaðar upp í 2,2 metra,
lunning á stefni var hækkuð nokkuð og skýli byggt á afturbrú yfir hífingavindur
á brúarreisn. Netatromla var sett niður fyrir aftan reisnina. Nýju þilfarshúsi
var komið fyrir bakborðsmegin á efra þilfari með stigagangi niður á
vinnsluþilfar. Aðalvélinni var skipt út fyrir nýja. Vélin er sama grunntegundin
og áður, endurbætt með tölvustýrðri eldsneytisinnsprautun og er 786 hestöfl við
1200 sn/mín. Skrúfugírinn var yfirfarinn og skipt um allar legur. Aðstaða fyrir
áhöfn var endurbætt með nýrri setustofu og stakkageymslu sem komið var fyrir
stjórnborðsmegin við íbúðir. Vinnsluþilfarið var allt endurgert og klætt.
Lenging skipsins kemur öll fram í lestinni, sem nú rúmar 128 fiskikör og er um
210 rúmmetrar.
Ægir. 3 tbl. 1 mars 1999.
10.12.2016 08:43
B. v. Þormóður goði RE 209. TFSD.
Bjart veður og sólskin var, er Þormóður goði sigldi fánum skrýddur inn á ytri höfnina hér í Reykjavík um klukkan 11,30 f. h. í gær. Þá þegar lögðu margir leið sína niður að höfn til þess að sjá togarann, sem er allur hið glæsilegasta skip. Um kl. 1 síðd. lagðist togarinn að hafnarbakkanum undir kolakrananum. Var þar fyrir allmargt fólk. Á nokkrum byggingum við höfnina var flaggað í tilefni af komu togarans. Um nónbil í gær bauð skipstjórinn, Hans Sigurjónsson blaðamönnum að skoða togarann. Tók hann á móti gestum sínum í hinni glæsilegu skipstjóraíbúð. Þar voru þeir einnig Hafsteinn Bergþórsson framkv.stj. og Þorsteinn Arnalds skrifstofustjóri Bæjarútgerðarinnar. Skipstjórinn skýrði meðal annars frá því, að í síðari reynsluför hefði togarinn náð 15 sjómílna hraða. Hann kvað enga reynslu enn komna á sjóhæfni togarans því ládauður sjór hefði verið alla leiðina. Þjóðverjar sögðu, að þó togað væri í 9 vindstigum, væri hvorki öryggi skipsmanna né skips teflt í tvísýnu. Á heimleið var komið við í Grimsby og tekin þar veiðarfæri og ýmislegt fleira.
Þormóður goði RE 209 á Humberánni á leið til Hull. Ljósmyndari óþekktur.
Eru í togaran um um 400 tonn af salti og á annað hundrað tonn af öðrum farangri, svo að heita má að hann hafi verið ,á hleðslumerkjum', er hann kom. Hann var þrjá sólarhringa frá Grimsby. Skipstjórinn sagði frá nokkrum nýjungum. Á stjórnpalli eru t. d. þrjú stýri, sem nota má til skiptis eftir þörfum. Það er stýri í miðri brúnni, hið venjulega stýri, skipsins, en svo eru stýri á hvorri síðu, sem notuð eru þegar togarinn er að veiðum. Í brúnni sýndi skipstjórinn blaðamönnum tvær fisksjár. Er önnur þýzk, og er hún jafnframt dýptarmælir, en hin er Kelvin-Hughes fisksjá. Þá sýndi hann sérstakan lofthemlaútbúnað fyrir vörpuna, sem verða á til mikils hagræðis við veiðar. Stjórnpallur skipsins er stór og bjartur. Sími er lagður um allt skipið, alls konar rofar og öryggistæki, sem gripið er til, ef eitthvað óvænt ber að höndum, t. d. eld. Loftskeytamaðurinn, Guðmundur Pétursson, sýndi gestunum hina miklu loftskeytastöð togarans. Sagði hann, að stöð skipsins væri það öflug að á stuttbylgjum mætti ná talsambandi við skipið nærri því hvar sem er á þeim siglinga og veiðisvæðum, sem ísl. togararnir kæmu á hér við land og við Grænland. Þá sýndi hann lítið tæki, sem er sjálfvirkur neyðarsendir og setja skal í samband, ef yfirgefa þarf skipið, hvort heldur er vegna strands eða óvæntra atvika á hafi úti. Þessi sjálfvirki neyðarsendir gerir það kleift fyrir önnur skip og strandstöðvar, að miða togarann nákvæmlega út. Gísli Jón Hermannsson, fyrsti stýrimaður, fylgdi blaðamönnunum um skipið.
Þormóður goði RE 209 í Reykjavíkurhöfn. (C) Valdimar Jónsson.
Allar íbúðir og gangar eru klæddir að innan með ljósum harðviði.. Eru íbúðirnar hinar vistlegustu og rúmgóðar. Gísli Jón benti á ýmislegt af því, sem nýtt er í þessu skipi. Sérstakur gangur er úr brú og aftur í skipið til mikils hægðarauka og öryggis fyrir skipsmenn. Þegar komið er í hásetaíbúðir, er fyrst komið í þurrkklefa, þar sem skipsmenn fara úr hlífðarfötum, en þar fyrir innan er hvítmálað, bjart snyrtiherbergi. Íbúðir eru allar hitaðar upp með rafmagni. Eru hásetaklefar ýmist 2 eða 4 manna og eru þar inni borð, kollar og bekkir. Rafmagnseldavél er í stóru og rúmgóðu eldhúsi og í matsalnum geta 26 skipsmenn borðað samtímis. Athygljsvert er það og að klampar allir í fisklestinni eru úr aluminium og einangrun fisklestar er jöfn í lofti sem gólfi lestarinnar. Sérstakur stigi er úr stigahúsi við framsiglu, niður í fisklestar. Hafsteinn Bergþórsson framkvæmdastjóri, upplýsti aðspurður, að þessi stóri togari, sem er eign Reykvíkinga, hefði kostað um 14 milljónir króna. Þormóður goði hefur meiri úthaldsmöguleika en nokkur annar íslenzkur togari. Hann getur verið að veiðum án þess að koma til hafnar og endurnýja vatns eða olíubirgðir samfleytt í 45 daga. Hafsteinn sagði að togarinn myndi í fyrstu veiðiförinni veiða fisk til söltunar. Lestarrýmið er það mikið, að ef vel gengur, getur togarinn komið með um 550 tonn af saltfiski úr þessari veiðiför. Það er nær 100 tonnum meira en "methafinn" Þorsteinn Ingólfsson, hefur landað eftir eina veiðiför. Hafsteinn Bergþórsson sagði, að nú ætti eftir að reyna það, hversu vandað skip Þormóður goði væri. Hið ytra væri svo að sjá, sem allt væri sérlega vandað og vandvirknislega af hendi leyst. Skipasmíðastöðin Seebeck í Bremerhaven hefur ekki fyrr smíðað jafnstóran togara. Aðalvél skipsins er 1650 hestafla Krupp vél. Sagði skipstjórinn frá því að í reynsluförinni hefði ekki orðið vart neins titrings, þó snúningshraðinn næði hámarki. Nú þegar er búið að ráða um 30 menn á Þormóð goða. Í gærdag komu um borð nokkrir sjómenn til þess að falast eftir skiprúmi. Væntanlega heldur Þormóður goði til veiða um helgina. Togarinn verður til sýnis fyrir almenning milli kl. 5 og 9 síðdegis í dag.
Þormóður goði RE 209 í Reykjavíkurhöfn á 8 áratugnum. Ljósmyndari óþekktur.
Síðdegis í gær skoðuðu borgarstjóri, bæjarstjórn og nokkrir gestir skipið.
Formaður útgerðarráðs, Kjartan Thors, flutti við það tækifæri eftirfarandi
ræðu: "Virðulegir gestir Bæjarútgerð Reykjavíkur er það mikil ánægja að bjóða
ykkur hjartanlega velkomna um borð í þetta nýjasta og stærsta skip
útgerðarinnar. Vissulega er slík viðbót við fiskiflota landsmanna merkur og
gleðilegur viðburður. Og efast ég ekki um
að flestir íbúar þessa bæjar óski þess af heilum hug að gæfa og gengi megi ætíð
fylgja hinu fagra skipi og áhöfn þess. Í fljótu bragði virðist einnig, að
ástæðulaust ætti að vera að óttast að slíkar óskir rættust ekki. Þormóður goði
mun vera stærsta og fullkomnasta fiskiskip, sem til þessa dags hefir komið í
eigu íslendinga. Það er byggt í einhverri þekktustu og beztu togarasmíðastöð,
sem starfrækt er í Evrópu, undir umsjón ágætra manna. Ekkert hefir heldur verið
sparað til þess að það geti gegnt því forustuhlutverki í veiðiflota íslendinga,
sem vonast mætti til af svo stóru og vel búnu skipi. Gera verður einnig ráð
fyrir að skiprúm verði eftirsótt og í það veljist úrval ágætis manna. Dagleg
stjórn í landi verður einnig í höndum hinna valinkunnu framkvæmdastjóra
Bæjarútgerðarinnar. Tvennt er þó það, sem varpar dálitlum skugga á gleði mína.
Má þar fyrst nefna hina ískyggilegu aflatregðu, er nú um langt skeið hefir
verið á veiðisvæðum togaranna. Og í öðru lagi mjög svo ófullnægjandi
starfsgrundvöllur, sem þessum veiðiskipum er búinn. Aflabrestinn ráðum við ekki
við, en með bjartsýni útvegsmannsins er sífellt vonað að úr rætist. Ég held að
allir séu mér sammála um að starfsgrundvöllur sá, er togararnir búa við, er
allsendis óviðunandi. Og þarf þar skjótra úrbóta, ef forða á vandræðum. Hefi ég
ástæðu til að ætla, að bráðlega verði gerðar ráðstafanir til lagfæringar.
Að lokum vil ég biðja ykkur, góðir gestir, að rísa úr sætum og sameinast um þá
ósk, að þetta nýja skip megi ætíð verða sannkölluð happafleyta. Guð og gæfa
fylgi ætíð skipi og áhöfn þess. Það lifi". Gunnlaugur Briem,
ráðuneytisstjóri þakkaði af hálfu gesta og árnaði skipinu heilla.
Morgunblaðið. 10 apríl 1958.
Nýja
bæjarútgerðartogaranum var gefið nafnið Þormóður goði
Áætlað að
skipið verði fullbúið í marz
Hinn nýi togari, er Reykjavíkurbær á í byggingu hjá A. G.
Weser "Werk" Seebeck, Bremerhaven, var flotsettur í fyrrdag, 28. janúar og
gefið nafnið Þormóður goði. Skrásetningarnúmer hans verður RE 209 og
einkennisbókstafir TFSD. Nafngiftina framkvæmdi, samkvæmt ósk borgarstjórans í
Reykjavík, frú Magnea Jónsdóttir, kona Hafsteins Bergþórssonar
framkvæmdastjóra, er einnig var viðstaddur sem umboðsmaður eigenda skipsins.
Ennfremur voru viðstaddir Gísli Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, Erlingur
Þorkelsson eftirlitsmaður og fyrsti vélstjóri skipsins, Pétur Gunnarsson. Þeir
Gísli og Erlingur hafa annazt eftirlit með smíði skipsins. Áætlað er, að skipið
verði fullbúið í marzmánuði n. k.
Alþýðublaðið. 30 janúar 1958.
09.12.2016 12:32
336. Björg NK 103. TFGR.
08.12.2016 07:30
1396. Gulley KE 31.
07.12.2016 11:34
493. Gullfaxi ÍS 594.
Óttast er um afdrif þriggja rækjubáta, tveggja frá Ísafirði
og eins frá Bíldudal. Tveir skipverjar eru á hverjum báti. Í gærkvöldi fannst
gúmbátur af einum bátanna við Skarð á Snæfjallaströnd og stíuborð fundust við
Auðkúlu í Arnarfirði, sem talið er að séu af Bíldudalsbátnum. Bátarnir, sem
saknað er eru Vísir BA 44,16 tonna eikarbátur frá Bíldudal. Gullfaxi ÍS 594, 19
tonna eikarbátur frá Ísafirði, og Eirikur Finnsson ÍS 26. 17 tonna eikarbátur
frá Ísafirði.
Rækjubátar réru frá Ísafirði í sæmilegu veðri í gærmorgun og fóru bátarnir, sem
saknað er frá Ísafirði, til veiða í innanverðu Djúpi. Upp úr hádegi var skollið
á aftakaveður af suðvestri. Um klukkan
15 voru bátarnir 'beðnir um að tilkynna sig og þá kom í ljós, að tveggja báta,
Gullfaxa og Eiríks Finnssonar, var saknað. Síðast er vitað um Gullfaxa út af
Arnarnesi á leið til Ísafjarðar, og um Eirík Finnsson þar sem hann var að hífa
innan við Ögurhólma skömmu eftir hádegi, en hafði ekki leitað vars. Þrír
línubátar frá Ísafirði fóru til aðstoðar og leitar fyrir klukkan 3 í gærdag og
björgunarsveitarmenn frá Súðavík, Ísafirði, Hnífsdal og Bolungavík voru
tilbúnir.
Línubáturinn Guðný fór með átta
björgunarsveitarmenn og kom þeim í land á Sandeyri á Snæfjallaströnd við
erfiðar aðstæður. Þeir munu ganga ströndina í dag og bændur á Snæfjallaströnd
byrjuðu leit á landi þegar síðdegis í gær og menn frá Unaðsdal fundu í
gærkvöldi gúmbát, sem talinn er vera úr Eiríki Finnssyni, við Skarð á
Snæfjallaströnd. í dag verður leitað á sjó, landi og úr lofti ef veður leyfir.
Fyrrnefndar björgunarsveitir munu hafa aðstöðu í húsi SVFÍ í Bolungarvík, en í
gær tóku auk fyrrnefndra aðila þátt í leitinni starfsmenn Slysavarnafélagsins í
Reykjavík, Landhelgisgæzlu og ísafjarðarradíós. Upp úr hádegi var farið að
óttast um rækjubátinn Vísi frá Bíldudal, Frigg BA var þá inni á Bíldudal og var
strax beðinn um að fara og svipast um eftir bátnum.
Þá var varðskipi, sem var miðsvæðis út
af Vestfjörðum, snúið við og stefnt í Arnarfjörð. Það hafði áður verið beðið um
aðstoð vegna Ísafjarðarbátanna, en snúið við þar sem færri skip voru til leitar
í Arnarfirði. Vísir hafði verið að hífa fyrir innan Gíslasker þegar síðast
fréttist, en bátarnir Vísir og Pílot BA 6 höfðu haft samband sín á milli.
Varðskipið fór inn fyrir Gíslasker, inn á Dynjandisvog og Borgarfjörð, en sá
ekki neinn bát. Hins vegar fannst ómerktur rækjukassi og lestarborð út af bænum
Auðkúlu. Bændur á Auðkúlu fundu síðan í gærkvöldi grámáluð stíuborð með rauðum
röndum, sem talið var að væru frá Vísi. Björgunarsveitarmenn fara með varðskipi
í dag og taka land á Rafnseyri til þess að leita fjörur við norðanverðan
Arnarfjörð.
Morgunblaðið. 26 febrúar 1980.
Vestfjarðafárviðrið
Sjómennirnir
taldir af
Sjómennirnir sex af vestfirsku rækjubátunum þremur sem
saknað var á mánudag eru nú taldir af og er formlegri leit hætt í
ísafjarðardjúpi og Arnarfirði. Flugvél frá flugfélaginu Örnum flaug leitarflug
í gær án árangurs, en næstu daga verður gengið á fjörur eftir því sem aðstæður
leyfa. Vitað er um flökin af Gullfaxa og
Eiríki Finnssyni á 50 og 36 faðma dýpi skammt norður af Vigur og brak
hefur fundist úr Vísi.
Með Gullfaxa fórust bræðurnir Ólafur S.
Össurarson og Valdimar Þ. Össurarson Ísafirði. Ólafur var 48 ára gamall,
kvæntur og þriggja barna faðir. Valdimar var 40 ára, kvæntur og átti 4 syni.
Morgunblaðið. 28 febrúar 1980.
05.12.2016 23:04
252. Jón Kjartansson SU 111. TFKK.
Jón Kjartansson SU 111 var smíðaður hjá Kaarbös Mekanik Verksted A/S í Harstad í Noregi árið 1963. 278 brl. 600 ha. Wichmann díesel vél. Eigendur voru Jón Kjartansson h/f á Eskifirði og Þorsteinn Gíslason í Reykjavík. 30 júní árið 1971 var nafni skipsins breytt, hét þá Guðrún Þorkelsdóttir SU 211. 8 júlí árið 1971 var skráður eigandi Sæberg h/f á Eskifirði, skipið hét Sæberg SU 9. Skipið var endurmælt í júní 1972, mældist þá 226 brl. Skipið var lengt og yfirbyggt árið 1978, mældist þá 275 brl. Ný vél (1980) 1.350 ha. Wichmann díesel vél. Selt 7 júlí 1986, Eskfirðingi h/f á Eskifirði, hét Eskfirðingur SU 9. Skipið sökk út af Héraðsflóa 14 júlí árið 1988. Áhöfnin, 6 manns var bjargað um borð í Hólmaborg SU 11.
Jón Kjartansson SU 111
Ægir. 15 janúar 1964.
Eskfirðingur SU 9 sökk á Héraðsflóa
Það var kominn mikill bakborðshalli á Eskfirðing þegar við komum að honum. Þetta leit alls ekki vel út. Við vorum að draga um 7 sjómílur fyrir norðan bátinn þegar við fréttum af lekanum. Þá var ekki talin hætta á ferðum. Við ákváðum samt að fara strax á staðinn þar sem við vorum með dælu um borð og gætum ef til vill hjálpað eitthvað. Þegar við komum að bátnum var eiginlega ekki annað að gera fyrir skipverjana en að stökkva frá borði, sagði Jóhann Kristjánsson, skipstjóri á Hólmaborg frá Eskifirði, við DV í morgun. Eskfirðingur SU 9 sökk út af Héraðsflóadýpi um klukkan átta í morgun. Sex manns voru um borð og björguðust þeir allir um borð í Hólmaborg frá Eskifirði sem var á veiðum rétt hjá. Eskfirðingur, sem er 275 lesta stálbátur, fór á rækjuveiðar í gærkvöldi. Klukkan hálfátta í morgun fékk Slysavarnafélagið tikynningu um að leki væri kominn að bátnum. Voru send út boð til slysavarnasveitanna á Borgarfirði eystra og Vopnafirði um að koma að Eskfirðingi með dælur. En lekinn var mikill og ljóst að slysavarnasveitirnar næðu ekki á staðinn í tæka tíð. Sökk Eskfirðingur um klukkan átta eða á hálfttíma.
Að sögn heimildarmanns DV gerðist þetta eins og hendi væri veifað. Hólmaborg, áður Eldborg frá Hafnarfirði, var þá komin á staðinn eins og áður sagði og bjargaði áhöfn Eskfirðings um borð. Að sögn skipstjóra Hólmaborgar var líðan mannanna góð eftir atvikum, Ágætis veður var á þessum slóðum þegar þetta gerðist.
DV. 14 júlí 1988.
05.12.2016 09:13
Kolbeinn ungi EA 450. TFEI.
Kolbeinn ungi EA 450 var smíðaður í Harstad í Noregi árið 1920. Fura. 58 brl. 60 ha. 2 þennslu gufuvél. Eigandi var Jón Jónsson á Akureyri (sennilega frá 1920-21). Skipið var selt 20 júní 1928, Sigurði Bjarnasyni á Akureyri. Ný vél (1930) 130 ha. Völund vél. Árið 1939 er dánarbú Sigurðar Bjarnasonar eigandi skipsins. Selt sama ár til Ísafjarðar, kaupandi óþekktur en skipið lá þar við bryggju í einhvern tíma. Skipið var selt 1 maí 1943, h/f Hólmsbergi í Keflavík (Stefán Franklín). Skipið var endurbyggt sama ár og ný vél, 136 ha. Ruston díesel vél sett í það hjá Dráttarbraut Akureyrar h/f, mældist þá 63 brl. Hét Hólmsberg GK 395 eftir endurbæturnar. Skipið brann og sökk 23 ágúst 1947 þegar það var á síldveiðum skammt frá Grímsey. Áhöfnin komst í nótabátanna og var bjargað þaðan um borð í Sjöstjörnuna VE 92 frá Vestmannaeyjum.
"Eyjafjarðarlík"
Skutull. 24 júní 1939.
Hólmsberg brann og sökk við Grímsey 5 eða 6 síldveiðiskip hafa farist í sumar
Enn eitt síldveiðiskipið fórst við Norðurland í gærmorgun. Það var m.s. Hólmsberg frá Keflavík. Eldur kom upp í skipinu og mátti ekki tæpara standa, en að áhöfn skipsins yrði bjargað yfir í annað skip. Þetta gerðist um kl. 8,30 í gærmorgun norður við Grímsey, Þar var Hólmsberg að veiðum, ásamt fleiri skipum er eldurinn braust út.
Eldurinn kom upp í vjelarúmi og varð þar allt því nær alelda í einni svipan Einn maður mun hafa verið þar niðri á vakt og komst hann upp án þess að hann sakaði. Skipshöfnin gerði nú tilraun til þess að kæfa eldinn í vjelarúmi skipsins, en hann magnaðist svo á skömmum tíma, að ekki var við neitt ráðið og varð skipshöfnin að yfirgefa skipið í snatri. Báðum nótabátunum var bjargað, svo og nótinni, en skipverjar munu hafa misst fatnað og annað sem þeim tilheyrði.
Það var m.s. Sjöstjarnan frá Vestmannaeyjum, er kom mönnunum til hjálpar. Munu þeir verða fluttir til Siglufjarðar og var búist við þeim í gærkvöldi, Engin síld mun hafa verið í skipinu er þetta gerðist.
Hólmsberg var eign hlutafjelagsins Hólmberg í Keflavík, Það var rúmar 62 lestir brúttó, Byggt 1920, en endurbyggt 1943, Um nokkurn tíma var það í ferðum milli Akraness og Reykjavíkur.
Morgunblaðið. 24 ágúst 1947.
04.12.2016 12:35
Drífa SU 392. TFDL.
Vb. Drífa
strandaði í nótt, mannbjörg varð
Vélbáturinn Drífa, RE-42, strandaði í nótt skammt fyrir sunnan Kalmanstjörn á Reykjanesi, en skipverjum var bjargað á land heilum á húfi. Samkvæmt upplýsingum, er Vísir fékk hjá skrifstofu SVFÍ,strandaði báturinn kl. 2.50 í nótt á skeri skammt sunnan Kalmanstjarnar. Veður var þá gott, vestanátt, en talsvert brim við ströndina. Það var vb. Svanur, RE 88 sem tilkynnti um strandið, en í fyrstu var óljóst, hvar það hefði orðið, og voru slysavarnasveitir víða á Reykjanesi til taks, en um 20 mínútum síðar fékkst örugg vitneskja um strandstaðinn, og brá slysavarnadeildin Eldey í Höfnum þegar við og kom á strandstaðinn undir stjórn formanns síns, Vilhjálms Magnússonar. Var þegar hafizt handa um björgun, og tókst hún mjög greiðlega, en skipverjum, 6 að tölu, var bjargað í land á björgunarstól. Sýndi deildin mikið snarræði við þetta tækifæri, Segja sjónarvottar, að ekki hafi mátt tæpara standa. Báturinn strandaði á fjöru, en brátt tók að falla að, og hvoldi honum á skerinu skömmu eftir að síðasti skipverjinn komst í land. V.b. Drífa, RE-42, er 38 brúttólestir að stærð, smíðaður í Kongshavn 1917, en endursmíðaður árið 1938. Eigandi hans er Jón Þórarinsson hér í bæ. Skipstjóri á Drífu er Kristinn Maríasson. Talið er sennilegt, að báturinn sé ónýtur með öllu, en ókunnugt er um orsakir strandsins.
Vísir. 6 febrúar 1953.
03.12.2016 10:50
Magnús NK 84. TFXE.
Þýsk
sprengjuflugvél ræðst á Norðfjarðarbáta
02.12.2016 10:55
Gunnar EA 405. LBDN.
Gufubáturinn
Gunnar ÍS 87 ferst.
Skutull. 11 árg. 35 tbl. 1933.
01.12.2016 11:04
425. Jón Ben NK 71.
Jón Ben NK
71
Yfirsmiður var Sverrir Gunnarsson, sem einnig teiknaði bátinn. Báturinn kostar yfir 600 þús. kr. með öllum útbúnaði, eða um 26 þús. kr. pr. tonn. Hjá Dráttarbrautinni er smíði 60 lesta báts komin á góðan rekspöl og byrjað er að smíða bát af sömu stærð og Jón Ben. Þá hefur verið pantað efni í nýjan 60 lesta bát. Þeir feðgar Ásgeir Bergsson og Guðlaugur Ásgeirsson eiga 55 lesta bát í smíðum á Isafirði, en hann mun ekki kominn langt áleiðis. Fleiri Norðfirðingar munu hyggja á bátakaup. Jón Ben er enn ekki tilbúinn til veiða, en vonazt er til að hann geti byrjað róðra í næsta smástraum. Annars er sjósókn sáralítil þrátt fyrir reytingsafla. Aðeins tveir bátar, Hafbjörg og Björg hafa róið að undanförnu, auk einhverra minni báta. Í gær var Björg þó ekki á sjó. Austurland óskar eigendum og áhöfn Jóns Ben til hamihgju með bátinn.
Austurland. 2 nóvember 1956.
Mjög víðtæk
leit að bátnum frá Súðavík í gær
Vélbáturinn Freyja BA 272 frá Súðavík, sem lýst var eftir í
fyrrakvöld var ekki kominn fram, er blaðið fór í prentun í gærkvöldi, en
bátsins hafði þá verið leitað frá því í fyrrakvöld. Fjórir bátar leituðu í
fyrrinótt og í gær leituðu tvær flugvéJar og nærri 20 bátar. Á Freyju eru
fjórir menn. Síðast heyrðist til Freyju kl. 16,30 í fyrradag, en þá mjög
ógreinilega og gæti það bent til ísingar. Í fyrrinótt leituðu Freyju fjórir
bátar, ísafjarðarbáturinn Hrönn, Heiðrún og Einar Hálfdáns frá Bolungarvík og strandferðaskipið
Blikur og í birtingu í gærmorgun leitaði landhelgisgæzluflugvélin Sif og
flugvél Vesturflugs á ísafirði ásamt 17 bátum hvaðanæva af Vestfjörðum.
Leitarskilyrði voru góð. Freyja mun hafa verið stödd út af svokölluðum
Eldingum, þegar síðast spurðist til hennar en kl. 5 var þar NA 8 stiga vindur
og blindhríð. Þremur klukkustundum síðar hafði hvassviðrið hert og var þá
vindhæðin komin í 9 stig og úrkoma hafði aukizt. Frost var á og skyggni ekki
meira en um 100 metrar. Landfhelgisgæzluflugvélin Sif leitaði úti fyrir öllum
Vestfjörðum og Vesturflugsflugvélin leitaði Norðurdjúpið, Jökulfirðina, í
Aðalvík. Leitað var úr landi þar sem því var við komið.
Björgunarsveitin í Bolungarvík þræddi ströndina til Skálavíkur, leitað var á
Ingjaldssandi út undir Barða og vitavörðurinn á Galtarvita leitaði í umhverfi
vitans. Minni bátar, sem þátt tóku í leitinni þræddu og strendurnar. Í gær
fundust línubelgir í beina vindstefnu NA frá þeim stað, sem báturinn gaf síðast
upp. Voru belgirnir í fjörunni við Galtarvita og báru merki Freyju. Þá fannst
bólfæri, sem ekki hafði verið vitjað um, sem einnig tilheyrði Freyju og er
einsýnt að báturinn hefur ekki fundið það í sortanum í fyrradag. Bólfærið var 7
mílur frá Deild og 6,4 mílur frá Rit. í gær fór veður versnandi á leitarsvæðinu
og var að hvessa en veðrið í gær var mjög hentugt til leitar. Bátar voru farnir
að tínast inn, þegar blaðið hafði síðast fréttir af leitinni. Var þá að koma
myrkur og farið að snjóa. Skipstjóri, sem jafnframt er eigandi bátsins, er
Birgir Benjamínsson, kvæntur maður, 38 ára gamall og á uppkomin stjúpbörn.
Aðrir á bátnum eru Lúðvík Guðmundson, ókvæntur og innan við tvítugt. Lúðvík er
stjúpsonur Birgis, Páll Halldórsson er einhleypur maður 50 ára að aldri og Jón
Þórðarson á unnustu og tvö börn og er 22ja ára. Freyja hét áður Jón Ben og var
þá gerður út frá Neskaupstað, en til Súðavíkur kom hún fyrir um það bil þremur
árum.
Morgunblaðið. 3 mars 1967.
Vb.
Freyja talin af
Með henni
fórust fjórir ungir menn
Vélbáturinn Freyja BA 272 er nú talin af og er leit að
bátnum hætt. Með bátnum fórust fjórir ungir menn, Birgir Benjamínsson,
skipstjóri, 38 ára gamall og lætur eftir sig konu og uppkomin stjúpbörn, Lúðvík
Guðmundsson, háseti, 17 ára, stjúpsonur Birgis skipstjóra, Páll Halldórsson,
vélstjóri, 50 ára ó- kvæntur og barnlaus og Jón Þórðarson, háseti, 21 árs,
kvæntur og á tvö ung börn. Snjókoma og dimmviðri tafði mjög alla leit í gær, en
eins og kunnugt er var bátsins saknað á miðvikudag og strax sama kvöld var
hafin umfangsmikil leit, sem bar þann árangur að fjórir línubelgir fundust.
Bólfæri fundust skammt vestur af Eldingum, en á þeim slóðum mun báturinn hafa
verið þegar síðast heyrðist til hans. Eldingar eru þau mið, þar sem Ritur ber í
hvilftina þá Straumnesshlíð hverfur, að sögn skipstjóra úr Djúpinu. Varðskip
leitaði í gær á þessum slóðum, en annars var ekki leitað að marki í gær vegna
dimmviðris fyrir vestan. Bátar, sem verið hafa að fara út og inn úr Djúpinu
hafa þó farið með ströndum og svipazt um, en einskis orðið vísari eins og áður
er sagt. Að sögn Slysavarnafélagsins hefur leitin verið mjög víðtæk og í
fyrradag leituðu tvær flugvélar og nær 20 bátar við mjög góð leitarskilyrði.
Morgunblaðið. 4 mars 1967.
- 1
- 2