27.11.2019 12:09
Þórkatla GK 97. TFXO.
Þórkatla GK 97 á leið til Siglufjarðar. (C) Snorri Snorrason.
Enn eitt
slysið
Mótorbáturinn Hulda frá Keflavík hefur stundað netjafiskirí
á þessari vertíð. Miðvikudaginn 26. febrúar var hún í slíkri veiðiför. Gott
veður var og sjólaust. Klukkan um hálf eitt á hádegi höfðu skipverjar vitjað um
eina trossu og voru á leið að annari. Einar G. Sigurðsson, eigandi og formaður
bátsins kallaði á einn af hásetum sínum og bað hann að taka við stýri af sér,
því keyrslutíminn skyldi notaður til matar. Einar gekk aftur í káetu og þaðan
út á þilfarið. En er matsveininn fór að lengja eftir honum í matinn fór hann að
litast um eftir honum. Hann fór að engu óðslega því að hann mun helst hafa
haldið að Einar hafi hallað sér einhversstaðar til hvíldar. En brátt fóru menn
að örvænta um hann og leituðu nú skipverjar allir og á öllum hugsanlegum stöðum
en fundu hvergi Einar., eða neitt, sem leitt gæti grun að hvarfi hans.
Telja þeir líklegast að hann hafi viljað huga að einhverju og sennilega fengið
aðsvif og fallið þannig fyrir borð. Á síðastliðnu sumri keypti Einar bát þennan
frá Svíþjóð og hóf aftur formennsku eftir nokkurra ára hlé. Hafði hann áður
verið formaður í fjölda mörg ár og verið fengsæll mjög. Einar var af öllum, sem
hann þekktu bezt, mjög vel látinn, ákaflega hjálpsamur og drengur hinn bezti,
enda munu margir telja sig í þakkarskuld við hann. Hann lætur eftir sig konu,
dóttur og tvo syni.
Faxi. 1 mars 1947.
Þorgeir goði VE 34 í sínu upprunalega útliti, "Blaðra". (C) Tryggvi Sigurðsson.
Fórst í
fimmta róðri
Áhöfnin komst í gúmmíbátinn
Um miðnætti í fyrrinótt fórst Grindavíkurbáturinn Þórkatla
undir innsiglingarvitanum inn til Grindavíkur. Átta menn voru á bátnum og
björguðu þeir sér allir á gúmmíbjörgunarbáti. Telja skipsmenn með öllu óvíst,
að svo giftusamlega hefði tekizt, ef þeir hefðu ekki komizt í gúmmíbátinn. Á
þessum sömu slóðum og Þórkatla fórst, varð skipstapi og manntjón fyrir sjö
árum. Vélbáturinn Þórkatla var nær 70 tonna vélbátur. Hefur Erling Kristjánsson
í Grindavík, ungur og dugandi sjómaður, verið formaður á bátnum í 3 ár. Var
Þórkatla í fimmta síldarróðri sínum er óhappið vildi til. Báturinn var kominn
svo nærri Innsiglingunni í Grindavíkurhöfn að þeir sem í brúnni voru, höfðu
verið að skima eftir svonefndum ,,Djúpsundsmerkjum", er báturinn tók niðri
á boða. Talsverð ylgja var og brim. Í stuttu samtali sem Mbl. átti í gær við
Erling formann Kristjánsson á heimili hans í Grindavík, sagði hann, að ástæðan
fyrir óhappinu hafi verið sú að báturinn hafi verið kominn nokkuð af venjulegri
siglingaleið, verið of grunnt. Hafi hann strax eftir að báturinn tók fyrst
niðri, en þá hafði formaðurinn verið að fá sér kaffisopa, séð að báturinn var
kominn á hættusvæði, þar sem brimið braut á boðum og skerjum allt í kring.
Árangurslaust var reynt að bakka bátnum út úr brotunum. Eins og komið var þá
var aðeins um eitt að gera. Reyna að bjarga mönnunum.
Því kvaðst Erling hafa tekið þá ákvörðun, að hleypa upp að ströndinni undir
vitanum, klöngrast yfir sker og boða. Hvað eftir annað tók báturinn niðri, en
formanninum tókst að koma bátnum yfir boðana, og inn að stórgrýttri ströndinni,
inn í bás, þar sem heitir Hópslátur, en þar fyrir ofan er Grindavíkurvitinn. Á
meðan á þessu gekk, sem allt tók aðeins nokkrar mínútur, höfðu skipsmenn allir
sýnt mikla ró og stillingu. Hver gekk að sínu verki, sem Erling formaður sagði
fyrir um. Þannig var gúmmíbjörgunarbáturinn strax leystur frá, kallað út
neyðarkall, og er báturinn var kominn inn í fyrrnefndan bás, var allt til reiðu
fyrir skipsmenn að yfirgefa bátinn, sem var tekinn að sökkva því botninn hafði
brotnað mjög. Allir skipsmenn nema matsveininn höfðu verið uppi í brú eða á
þilfari við að ganga frá afla og veiðafærum. Matsveininn einn var kominn niður.
Fyrst fóru í gúmmíbátinn 3 skipverjanna. Höfðu þeir með sér línu úr hinum
sökkvandi báti. Er þeir komu í fjöruna og höfðu skriðið út úr bátnum í
brimgarðinum, drógu skipsfélagar þeirra úti í bátnum, gúmmíbátinn til sín. Þar
voru þeir sem eftir voru, fimm talsins, til taks að fara í bátinn. Erling
formaður hafði verið inni í brúnni, og skaut þaðan neyðarrakettu upp. Rétt í
sama mund sökk báturinn svo að aftan að brúin fylltist af sjó, og flaut Erling
þá út um einn brúarglugga en náði fljótt fótfestu á þilfari, og fór að
gúmmíbátnum. Rétt á eftir, að hann sem formaður hafði síðastur manna yfirgefið
hinn strandaða bát, stóð aðeins bátstefnið upp úr. Báturinn hvarf þeim sjónum í
næsta broti en það fleytti mönnunum upp að ströndinni. Eftir það sást báturinn
ekki, utan þess að um háfjöru í gærmorgun, hafði annað mastrið sézt. MiIIi
30-50 metrar voru frá bátnum og upp í fjöruna og gekk sú ferð greiðlega. Voru
skipbrotsmennirnir lagðir af stað gangandi og komnir fram hjá Grindavíkurvita,
á hinum þrönga slóða gegnum hraunið, er björgunarleiðangurinn frá Grindavík kom
á móti þeim. Og um leið og kona formannsins bar tíðindamanni og Ijósmyndara
Mbl. rjúkandi kaffi, sagðist hún ekkert hafa vitað um hversu komið var, fyrr en
Erling kom heim allur holdvotur. Til allrar hamingju sagði hún og setti frá sér
bollabakkann.
Á bátnum voru auk Erlings Kristjánssonar formanns: Eyþór Magnússon stýrimaður
frá Selfossi. Hann var í brú er báturinn strandaði. Vélstjóri var Sigurður
Pálsson frá Reykjavík, annar vélstjóri Ingólfur Júlíusson, Grindavík, matsveinn
Þorvaldur Ottóson Reykjavík, Pétur Kristófersson Arnarfirði, Ragnar Magnússon
Grindavík og Finnbogi Sigurðsson Hafnarfirði voru allir hásetar.
Morgunblaðið. 29 nóvember 1959.
22.11.2019 10:16
1050. Eldborg GK 13. TFKB.
1050. Eldborg GK 13 á loðnuveiðum. (C) Sigurður Bergþórsson.
Hægt að hafa heilt síldarplan undir þiljum
segir Gunnar
Hermannsson skipstjóri á Eldborgu
Eldborg, stærsta stálskip, sem smíðað hefur verið hér á
landi, kom í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar í Hafnarfirði í gær. Skip þetta
er smíðað hjá Slippstöðinni á Akureyri og var hleypt af stokkunum 22. Júlí í sumar. Aðaleigendur þess, Gunnar Hermannsson
skipstjóri og Þórður Helgason 1. vélstjóri, sýndu blaðamönnum og öðrum gestum
skipið í gær, en þar er margt nýjunga. Sagði Gunnar skipstjóri, að skipið gæti
stundað allan venjulegan veiðiskap, hvort heldur væri síldveiðar, togveiðar,
línu eða netaveiðar. Skipið er með tvöföldu dekki og er vinnupláss undir þiljum
á neðra dekkinu, þar sem hægt er að hafa heilt síldarplan ef svo ber undir að
því er Gunnar sagði. Kælikerfi er í undirlest skipsins, en hún er fjórskipt,
þannig að minni hreyfing verður á aflanum í lestinni en ella. Skipið kostar um
28 milljónir með öllum tækjum og mun það vera sambærilegt verð, miðað við
skipasmíðastöövar á Norðurlöndum, enda sagði Gunnar, að hann mundi ekki leita
annað, ef hann þyrfti að láta smíða annað skip, og rómaði mjög allan frágang.
Meðal tækja skipsins er nýtt amerískt fiskileitartæki, sem ekki mun hafa verið reynt hér áður, nema ef
til vill í einu skipi. Það er eins konar neðansjávarradar, SS 200 Zona, en það
gefur radarmynd af sjónum allt umhverfis skipið og dregur um 1000 metra (3200
fet). Tæki þetta á að gefa heildarmynd af síldartorfunum, eða fiskitorfum í
nálægð skipsins, en Astiktækin sýna ekki nema lítinn geira af sjónum umhverfis.
Nú er verið að byrja að framleiða tæki af þessari gerð, sem eru mun langdrægari
og telja margir að slík tæki verði leitartæki framtíðarinnar. Eldborg er að
sjálfsögðu búin hliðarskrúfum, eins og flest nýjustu síldarskipin, síldardælu
og sérstökum löndunartækjum til pess að landa úr lestum skipsins.
Eldborg er 415 lestir samkvæmt nýju mælingareglunum, ganghraði skipsins var
12,4 mílur í reynsluför. Það mun halda á síldarmiðin nú um helgina.
Vísir. 15 september 1967.
1050. Eldborg GK 13 með fullfermi af loðnu á Eskifirði. (C) Vilberg Guðnason.
1050. Eldborg GK 13 með fullfermi af loðnu á leið inn til Eskifjarðar. (C) Vilberg Guðnason.
Stærsta
skip, sem smíðað er hérlendis
Eldborg GK 13 hleypur af stokkunum
í Slippstöðinni á Akureyri
Akureyri, 22. júlí.
Gífurlegur fjöldi áhugasamra og eftirvæntingarfullra Akureyringa fyllti hið
stóra skipasmíðahús Slippstöðvarinnar hf. í kvöld til þess að verða viðstaddur
hina langþráðu og hátíðlegu stund, þegar stærsta stálskip, sem smíðað hefir
verið innan lands til þessa, rynni í sjó fram. Grámálað skipið með hvíta
yfirbyggingu og gulan reykháf, beið þess tignarlegt og æruverðugt á stokkunum
með bláar blæjur bundnar yfir nafn og númer að fá að snerta saltar sævaröldur í
fyrsta sinn, prýtt fánum og skrautveifum stafna á milli. Menn skynjuðu glöggt,
að upp var runninn mikill sigurdagur í sögu íslenzkra skipasmíða og þá um leið
iðnaðarsögu Akureyrar, og fylgdust því með því af nokkru stolti, sem fram fór.
Upphaflega var ákveðið, að athöfnin hæfist kl. 21, en vegna þess að háflóð kom seinna
en búizt hafði verið við, var henni frestað til kl. 22.30. Þá gengu upp á
pallinn, sem reistur hafði verið framan við skipsstefnið, Skafti Áskelsson
forstjóri Slippstöðvarinnar, Hallgrímur fulltrúi, sonur hans, ásamt frúm sínum,
Þorsteinn Þorsteinsson skipasmíðameistari, yfirsmiður skipsins, ásamt
væntanlegum eigendum skipsins, stjórnarmönnum Eldborgar hf. í Hafnarfirði,
Gunnari Hermannssyni, Þórði Helgasyni og Sverri Hermannssyni ásamt skylduliði
þeirra. Alls voru viðstaddir 13 manns úr fjölskyldu Gunnars, sem verður
skipstjóri á hinu nýja skipi.
Eldborg GK 13 í smíðum hjá Slippstöðinni á Akureyri 1967. (C) HRB.
Fyrst tók til máls Skafti Áskelsson, þakkaði öllum, sem lagt hefðu hönd á
plóginn við smíði þessa skips á einn eða annan hátt, og lýsti trausti sínu á
akureyrskum iðnaðarmönnum og handaverkum þeirra, sem hann kvað fyllilega
standast samanburð við hið bezta í nálægum löndum. Hann vonaði, að brátt yrðu
íslenzkar skipasmíðastöðvar einnig samkeppnisfærar við erlendar um verðlag.
Því næst lýsti skipaskoðunarstjóri mælingu skipsins. Samkværnt nýjum
alþjóðlegum mælingareglum, sem gengu í gildi fyrir Ísland hinn 1. maí s.l., er
það 415 brúttó rúmlestir, en samkvæmt eldri reglum hefði það verið talið 557
rúmlestir brúttó. Lengdin er 44.25 m, breidd 8,6 m og dýpt 6,5 m. Að lokum
árnaði hann skipinu allra heilla og vonaði, að það yrði happafleyta. Nú gekk
fram Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, dóttir Gunnars Hermannssonar, klædd
íslenzkum búningi, gaf skipinu nafn og óskaði því heilla og hamingju, um leið
og hún lét kampavínsflösku brotna á stefni þess. Meðan kampavínið freyddi um
bóginn, féllu blæjurnar af nafni og númeri skipsins og við blasti ELDBORG
GK-13. Í sömu andrá komst skipið á hreyfingu, rann hratt og rösklega út úr
skipasmíðahúsinu og flaut nú á smáýfðum sjónum fram undan Oddeyri með blaktandi
fánum. Um leið gullu við fagnaðarhróp mannfjöldans.
Vélskipið Búðaklettur beið fyrir framan og dró hið nýja og glæsta far upp að
bryggju í bátakvínni framan við Slippstöðina.
Eldborg GK sjósett hinn 22 júlí. Það er vélskipið Búðaklettur sem er með Eldborgina á síðunni og kom henni síðan að bryggju. (C) HRB.
Heillaóskir bárust frá Jóhanni
Hafstein, iðnaðarmálaráðherra, og Eggert G. Þorsteinssyni, sjávarútvegsmálaráðherra.
Kjölur að Eldborgu var lagður snemma í desember 1966, og hefir hún verið smíðuð
eftir reglum þýzka Lloyds, flokkunarfélagsins og Skipaskoðunar ríkisins. Hún
hefir tvö heil þilför, aðalþilfar og 2. þilfar. Tvær lestar eru undir 2.
þilfari, og er þeim skipt að endilöngu með vatnsþéttu þili. Ein lest er milli
þilfara og íslest í framskipi. Vélbúnaður er allur af fullkomnustu gerð.
MAN-dísel aðalvél framleiðir 990 hestöfl við 375 snúninga á mínútu. Við
aðalvélina er tengdur úrtaksgír og öxulrafall. Skiptiskrúfa er frá norska
fyrirtækinu Hjelset. Ljósavélar framleiða 220 volta riðstraum til hjálpartækja
og ljósa. Tvær Ulstein-hliðarskiúfur eru í fram og afturskipi, 100 hestöfl
hvor. Skipið verður útbúið til síldveiða og hefir nýtízku háþrýstivökva snurpu-
og nótarvindu ásamt síldardælu. Nótarrennur eru tvær, þar af önnur aftast í
niðurfærðum nótarkassa. Íbúðir eru allar í afturskipi, 7 tveggja manna klefar
og 3 eins manns, auk eldhúss, borðsalar (með sjónvarpi) og snyrtingar. Aftan
stýrishúss á aðalþilfari er kortaklefi og hvíldarherbergi skipstjóra. Stjórn
aðalvélar og hjáJpartækja er öll framkvæmanleg úr stýrishúsi, og þar eru öll
fullkomnustu siglinga- og fiskileitartæki, sem völ er á. Hjálmar R. Bárðarson
gerði línuteikningu af skipinu, en allar aðrar teikningar eru gerðar í
Slippstöðinni. Eldborg verður afhent eigendum fullbúið um miðjan ágústmánuð
Morgunblaðið. 25 júlí 1967.
1050. Hafrún ÍS 400 á landleið. (C) Jón Páll Ásgeirsson.
Nýtt skip
til Bolungarvíkur
Bolungarvík, 9. jan.
Síðdegis í gær kom hingað til Bolungarvíkur rúmlega 400 lesta nótaskip sem
Einar Guðfinnsson hf. hefur keypt frá Hafnarfirði. Skipið, sem áður hét
Eldborg, hefur hlotið nafnið Hafrún og ber einkennisstafina ÍS 400. Skipið fer
væntanlega til loðnuveiða í kvöld. Skipstjóri verður Benedikt Ágústsson og 1.
vélstjóri Eiríkur Bergsson. Rækjuveiði hófst á Ísafjarðardjúpi í dag og virðist
afli rækjubáta vera sæmilegur.
Morgunblaðið. 10 janúar 1979.
Hafrún ÍS á strandstað undir Stigahlíðinni. (C) Morgunblaðið / RAX.
Flak Hafrúnar ÍS í urðinni undir Stigahlíðinni. (C) Sveinbjörn Guðmundsson.
Flak Hafrúnar ÍS í fjörunnu undir Stigahlíðinni í sept 1988. (C) Gísli Aðalsteinn Jónasson.
11
skipverjar björguðust á strandstað við Ísafjarðardjúp
Liðlega fjögurhundruð tonna fiskiskip, Hafrún ÍS 400,
strandaði í gær á landleið við utanverða Stigahlíð við Ísafjarðardjúp, nálægt
Deildarhorni. 11 menn voru á skipinu og björguðust þeir allir í land, en nokkru
síðar tóku tvær björgunarþyrlur skipbrotsmennina um borð, þyrla
Landhelgisgæzlunnar og önnur franska björgunarþyrlan sem er nú hér á landi við
störf. Þungur sjór var og dimmviðri þegar skipið strandaði, en þarna er mjög
grýtt strönd. Skipið strandaði um kl. 14.30, en allir skipverjar voru komnir í
land kl. 4. Hálfri klukkustund síðar voru björgunarþyrlurnar komnar á vettvang
og gekk greiðlega að hífa skipbrotsmennina um borð, en ekki var unnt að lenda í
stórgrýttri fjörunni undir snarbrallri fjallshlíð. Fluttu þyrlurnar
skipbrotsmennina til sinna heimahaga á Ísafirði og í Bolungarvík, en þyrla
Landhelgisgæzlunnar sótti einnig 10 manna björgunarflokk frá Bolungarvík sem
var kominn langleiðina á strandstað þegar þyrlan sótti þá. Hafrún strandaði
uppi í harða landi, en þegar skipstjórarnir yfírgáfu skipið var mikill sjór
kominn í það. Hugað verður að björgunaraðgerðum í dag. Morgunblaðið ræddi við
þrjá skipbrotsmenn í gær og fer viðtalið við Bjarna Þór Sverrisson háseta hér á
eftir:
"Þetta er þriðja strandið sem ég lendi í, en ég hef aldrei áður þurft að
yfirgefa skip," sagði Bjarni Þór Sverrisson háseti í samtali við
Morgunblaðið á heimili sínu á Ísafirði síðdegis í gær, skömmu eftir að hann kom
af strandstað með frönsku þyrlunni. "Við vorum búnir að sigla dágóða stund,
eftir að skipstjórinn hafði sagt okkur að ekki yrðu dregnar nema þessar þrjár
trossur sem búið var að draga, þar sem fréttst hafði af mjög vondu veðri á þeim
slóðum sem hinar trossurnar voru," sagði Bjarni Þór, "þegar allt í einu
var slegið af og byrjað að bakka, spurði einhver hvort að við værum komnir til
Bolungarvíkur, en ég sagði að það gæti ekki verið, við værum ábyggilega að keyra
einhversstaðar upp í fjöru. Um leið byrjuðu skruðningarnir og skipið var
strandað. Þegar skipstjórarnir höfðu kallað okkur alla saman var óskað eftir
tveimur sjálfboðaliðum til að fara í land á gúmmíbjörgunarbáti til að undirbúa
að koma öðrum skipverjum í land. Róbert stýrimaður gaf sig strax fram og ég
sagðist vera tilbúinn að fara með honum," sagði Bjarni Þór. "Síðan var
sett taug milli gúmmíbátsins og Hafrúnar og við fórum í bátinn, en ætluðum
aldrei að komast frá skipinu vegna straums og vinds. En eftir 15-20 mínútna
barning komumst við !oks að landi og þá orðnir rennandi blautir, en 30-40 metrar
voru þá á milli skips og lands. Við komum síðan fyrir líflínu í landi og síðan
var tildráttartaug fest í gúmmíbátinn og menn dregnir þrír í einu í land. Þegar
allir voru komnir í land og menn fóru í ullarföt sem skipstjórarnir komu með í
land, var ég orðinn svo dofinn á fótunum og tilfinningalaus að ég fann ekkert
til, en skipsfélagar mínir nudduðu á mér fæturna og þegar það dugði ekki tók
einn skipsfélagi minn sig til og tróð löppunum á mér inn á bringu á sér og þá
fyrst fór ég að fá tilfinningu í fæturna aftur. Það var erfitt að labba í
fjörunni, sleipt og stórgrýtt og því gott að fá þyrlurnar. Ég var rétt að
setjast á einhvern gúmmíhring sem hékk neðan úr þyrlunni, með sjópokann undir
hendinni, þegar ég var allt í einu hífður upp í þyrluna. Auðvitað eru allir
hálf smeykir þegar svona hendir, en allir voru rólegir og þess vegna gekk þetta
vel. Ég vil að lokum koma á framfæri þakklæti til allra þeirra að svo
giftusamlega tókst til."
Morgunblaðið. 3 mars 1983.
20.11.2019 17:36
Siglufjörður og síldin.
Siglufjörður á fjórða áratugnum. (C) Vigfús Sigurgeirsson.
Siglufjörður
og síldin
Síldveiðarnar eru orðnar mikilsverður þáttur í lífi
Íslendinga. Síldarmiðin við Norðurland eru auðug náma, sem eigi aðeins
íslendingar heldur og aðrar þjóðir, og þá fyrst og fremst Norðmenn ausa af, svo
og Danir, Finnlendingar, Svíar, Þjóðverjar og Lettlendingar. Þó að ýmsar
síldveiðistöðvar og merkar sjeu á Norður og Vesturlandi er það þó einn staður
öðrum fremur, sem öllum dettur í hug, þegar minst er á síld og það er
Siglufjörður. Þar er miðstöð allra síldveiða við Ísland og þar kemur mestur afli
á land. Siglufjörður og síld eru tvö óaðskiljanleg hugtök. Það voru Norðmenn,
sem fyrstir byrjuðu á síldveiðum hjer við land og þykjast hafa kent íslendingum
að veiða síld. Þeir óðu hjer uppi sem innlendir væru og nutu allra sömu
hlunninda og landsbúar lengi vel. Og svo þegar landinn fór að rumska og sýna
Norðmanninum, hver ætti húsbóndarjettinn í íslenskum höfnum, brugðust hinir
illa við. Þegar Íslendingar settu lög um, að eigi mættu aðrir veiða síld og
verka innan landhelgi en Íslendingar sjálfir, þótti Norðmönnum þetta fúlmenska,
svo vanir voru þeir orðnir gestrisninni. Og margskonar þófi hafa Íslendingar
átt í við þá síðan og flóknir viðskiftasamningar við Norðmenn sprottið upp af
síldinni. Nú veiða Norðmenn utan landhelgi og verka síldina þar og senda hana
beint til útlanda og selja sem "Prima Íslandssíld". Þetta hefir þrengt svo
markaðinn á saltsíld fyrir íslendingum sjálfum, að til nýrra ráða þurfti að
taka og stofna til verksmiðjuiðnaðar. Meginhluti þeirrar síldar, sem íslenskar
hendur afla nú, fer "í bræðslu" sem kallað er. Það er unnið fóðurmjöl og
lýsi úr síldinni. Siglufjörður hlýtur að vera einkennilegur bær.
Það var nóg að gera á síldarplönunum. (C) Vigfús Sigurgeirsson.
Þar er allt
með kyrrum kjörum frá því á haustin og fram í júní, en þá fer fólkið að streyma
í bæinn í hundruðum og þúsundum og höfnin fyllist af skipum. Þótti þar oft
slarkfengið á vertíðinni forðum, meðan Norðmenn óðu þar uppi í algerðu
lagaleysi og þóttust hafa heimild til að haga sjer eins og þeim þóknaðist. Þá
spurðust oft um land allt orustur, sem háðar voru þar á kvöldin, þegar landlegur
voru, þar voru dansleikir í öllum húsakynnum sem leyfðu, og þeir sem hvergi
fengu húsaskjól dönsuðu á bryggjunum. Þar var nóg rúmið. Og oft var þar líka
nóg af áfengi. Ef orðinu hallaði milli manna undir þeim kringumstæðum, spunnust
áflog af. Fyrst milli tveggja og svo þurftu fleiri að koma til og skakka
leikinn, svo að oft varð stór óflogahundahópurinn að lokum, alveg eins og í
rjettunum, þegar hundarnir bitust. Lögreglulið var ekki til, þess megnugt að
skakka leikinn, og sögðu slæmar tungur, að lögregluþjónninn hypjaði sig á burt,
þegar áflogin byrjuðu. Sögurnar frá Siglufirði í þá daga voru ekki ósvipaðar
sögunum, sem maður heyrir vestan frá námubæjunum í Klondyke og sem svo oft eru
sýndar á kvikmyndum. Og eflaust hefði mátt taka skemmtilega og "drastiska"
kvikmynd af hinu forna Siglufjarðarlífi, ef sögurnar hafa verið sannar. En nú
er allt með öðrum svip. Nú er lífið komið í fastari skorður og nú þykir það
viðburður, ef heyrist að handalögmál gerist á Siglufirði, nema þá milli
kommúnista og "borgaranna", en slík handalögmál eru ekki ótíðari
annarsstaðar hreyfingunni veldur fyrst og fremst áhugi bæjarbúa sjálfra fyrir
því að reka af sjer óspektirnar, aukin löggæsla, minna brennivín, en umfram
allt það, að nú eru útlendingar miklu sjaldsjeðari gestir á Siglufirði en áður
var, meðan útlendu skipin lögðu þar upp afla sínum.
Síldarstúlkurnar salta í hverja tunnuna eftir aðra. (C) Vigfús Sigurgeirsson.
Siglufjörður er að verða
fyrirmyndarbær, með fallegu skipulagi, bær sem er einstakur í sinni röð á
Íslandi, fyrir allar bryggjurnar og "plönin", sem síldin krefst. Í
júnímánuði fara skipin íslensku að búast á síldveiðar og koma norður á síldveiðistöðvarnar
í júnílok eða fyrst í júlí. Er þá oftast veitt í bræðslu fyrstu vikurnar, ýmist
vegna þess að síldin þykir ekki söltunarhæf vegna megurðar eða vegna þess að
áta er í henni, svo að ekki má salta hana nema magadregna. En 20.-25. Júlí
hefst söltunin fyrir alvöru. Þá eru öll skip komin á síldveiðar og er það ekki
smáræðisfloti. Í sumar stunduðu þannig síldveiðar 8 togarar, 31 gufubátur og 63
vjelbátar. Voru togararnir úr Reykjavík og Hafnarfirði, gufubátarnir flestir úr
Reykjavík, Hafnarfirði og af Akranesi, en vjelbátarnir frá Vestmannaeyjum,
Faxaflóa og af Ísafirði og úr Eyjafirði aðallega. Telja má, að á hverjum
vjelbát sjeu 16-17 menn, á gufubátunum 18-20 og á togurunum 20-22. Við veiði síldarinnar
hafa því fengist um 1800 manns á síðastliðnu sumri. Hvað er það, sem hefir gert
Siglufjörð sjerstaklega að miðstöð síldveiðanna? munu ókunnugir spyrja. Aðal
síldarmiðin eru frá Horni til Langaness og enda má telja síldarmiðin allt frá
Ísafjarðardjúpi og austur til Bakkafjarðar. Á þessu svæði er Siglufjörður
miðsvæðis og þaðan er því hentugt að sækja hvort heldur vill austur eða vestur,
þangað sem síldinni þóknast að vera í það skiftið. Því að hún hefir enga
prentaða ferðaáætlun og er ýmist í austri eða vestri. Gamlir menn og reyndir
telja síldargöngurnar þrjár og koma þær allar að vestan.
Síldin brædd dag og nótt. (C) Þorsteinn Jósepsson.
En svo geta þær horfið
á miðri leið, eða breytt áætlun, eftir því hvernig átan, sem síldin er á
hnotskóg eftir, hagar sjer, en mestu veldur þó veðráttan um síldaraflann. Þegar
veður er hagstætt má oftast nær finna næga síld einhversstaðar, vestur í
Húnaflóa, út af Skaga og á Skagafirði, út af Eyjafirði eða austur við Sljettu
eða Langanes. Skipin koma flest inn á kvöldin og fara út seinnipart nætur. Það
er með síldina eins og laxinn, að hún veiðist verst um hádaginn en best í
ljósaskiftunum, en svo mislangt er að sækja hana, að eigi geta skipin áætlað
sjer ákveðinn tíma til að komast þangað sem veiðin er. Um sjálfa veiðina og
veiðiaðferðina mætti skrifa langt mál, en hjer er ekki rúm til að rekja annað
en það, sem viðkemur síldinni eftir að hún er komin að landi og verður þó að
fara mjög fljótt yfir sögu.
Flest skipin selja ákveðinn hluta afla síns til söltunar, en mestan hlutann í
bræðslu. Leggur þá skipið fyrst að söltunarplássinu er það kemur inn og skipar
þar upp því nýjasta af aflanum. Venjulega
þykir síldin ekki söltunarhæf, ef hún er meira en 8 tíma gömul úr sjónum. Þegar
því er lokið flytur skipið sig að verksmiðjubryggjunum og þar er svo afgangnum
skipað upp. Á söltunarplássin er síldinni skipað upp í körfum og stömpum, og er
þeim ekið upp að söltunarkössunum á kerrum og tæmdir þar, eða tæmt úr körfunum
beint í kerrurnar.
Síldinni landað úr bát á Siglufirði. Vigfús Sigurgeirsson.
Annars vegar við kassana standa söltunarstúlkurnar viðbúnar
að taka við síldinni með stamp og salttrog og klippur sínar og má þar sjá snör
handtök, er þær grípa síldina, kverka hana og velta upp úr saltinu og þá eru
handbrögðin eigi síðri þegar stúlkurnar raða síldinni í tunnurnar; hvert síldarlagið
fyllist á augnabliki, saltlagi er skvett ofan á og svo koll af kolli þangað til
tunnan er orðin full. Nú á síðustu árum er farið að verka mikið af síldinni sem
matjessíld, er hún linsaltaðri en venjuleg saltsíld. Í saltsíldartunnuna mun
fara um 25 kg. af salti (grófu salti), en í matjessíldartunnu ca. 16 kg. af
fíngerðu salti. Verksmiðjusíldinni er skipað upp með krana, sem gengur fram og
aftur með málin, milli skips og bryggju. Við síldarverksmiðju ríkisins á
Siglufirði getur eitt skip landað um 100 málum á klukkutíma. Það væri
freistandi að segja nokkuð frá ferðalagi síldarinnar frá því að hún skilur við
skipsfjöl og þangað til hún er orðin að mjeli og lýsi, en margan mun furða á
því, að ekki líður nema klukkutími frá því að hún fer úr geymsluþrónni inn í
verksmiðjuna og þangað til mjelið er komið í sekkinn. Lýsið tekur nokkru lengri
tíma að fullverka. Síldin er afhent verksmiðjunum eftir vikt og er þá talið, að
málið, eða 1 ½ hektoliter sje 135 kg.
Hver kynstur af síld verksmiðjurnar geti malað og pressað yfir alla vertiðina
má ráða af því, að ríkisverksmiðjan á Siglufirði getur brætt 2300 mál á dag,
Dr. Pauls-verksmiðjan (rekin af ríkinu) 1400 mál, Goos-verksmiðjan 900 mál,
verksmiðjan á Raufarhöfn 6-700 mál, Krossanes 2300 mál, verksmiðjan á Sólbakka
1000, á Hesteyri 1330 mál og á Dagverðareyri 1150 mál.
Síldin kverkuð og síðan söltuð í tunnurnar. Ljósmyndari óþekktur.
Alls geta verksmiðjurnar þannið brætt um 11.000 mál á dag, og þar sem gera má
ráð fyrir, að um 400 síldar fari í málið, geta þessar verksmiðjur allar malað
um 4 ½ milljón síldar á hverjum degi. Úr
hverju máli síldar er gert ráð fyrir að fáist 20-22 kg. af mjöli, en 18-20 kg.
af lýsi. Á síðastliðinni vertíð fóru alls í bræðslu 686.726 hektólítrar af
síld, og svarar það til þess að síldarmjölsframleiðslan í ár verði um 10 þúsund
smálestir og lýsisframleiðslan yfir 9.500 smálestir. Þá voru saltaðar alls
216,760 tunnur, þar af saltsíld nær 88.000 tunnur, linsöltuð síld (matjes)
rúmar 71.000 tunnur, kryddsíld 31.455 tunnur, og sykursöltuð síld 31.455 tunnur
og sjerverkaðar 14.280 tunnur. Má ætla, að allt að 40 miljón síldar hafi verið
saltaðar í sumar, ef miðað er við að þrjár síldar fari í kílógrammið, en
síldarinnihald tunnu er talið 90 kg. Af tölum þeim, sem nefndar hafa verið hjer
að framan má ráða hvílík ógrynni síldar eru drepin hjer við land á hverju ári.
En þó er hjer alls eigi allt upp talið. Það er ekkert smáræði heldur sem
útlendingarnir drepa af síld hjer við land á hverju ári. Í sumar er talið, að
Norðmenn hafi saltað hjer við land 130-140 þúsund tunnur, auk þess að þeir
lögðu upp mikið af bræðslusíld til Krossanesverksmiðjunnar, en hún bræddi rúm 126.000
mál.
Tómar síldartunnur á Siglufirði. (C) Vigfús Sigurgeirsson.
Lettlendingar munu hafa veitt um 12.000 tunnur, Svíar um 30.000 tunnur,
hinn danski leiðangur A. Godtfredsen um 5.000 tunnur, Þjóðverjar um 5.000 tunnur
og Finnlendingar um 40.000 tunnur. En ekki virðist vera neitt lát á síldinni.
Þessi merkilegi fiskur sækir ár eftir ár á sömu miðin. Menn hafa ekki vitað
"hvaðan hann kemur eða hvert hann fer" fremur en vindurinn. En allir sjá,
að það er mikilsvert atriði fyrir íslenska atvinnu, að kynnast nokkru nánar
högun síldarinnar og nú á síðari árum er unnið að rannsóknum á þessu máli, af
íslendinga hálfu einkum af Árna Friðrikssyni fiskifræðingi. Síldin er orðin
mikilsvert þjóðhagsatriði fyrir íslendinga. Þó að marga hafi klæjað undan
skellunum, sem þeir hafa fengið undan þessum silfurgljáandi fallega fiski,
hlýtur að fara svo, að síldarútgerðin verði öruggur atvinnuvegur í framtíðinni.
Og áhættan við þennan útveg hefir stórum minkað við það, að farið var að
takmarka söltun á sildinni og bræða mikinn hluta hennar.
18.11.2019 17:46
B. v. Snorri Sturluson RE 134. LCDB.
Botnvörpungurinn Snorri Sturluson RE 134 var smíðaður hjá Cook Welton & Gemmell Ltd South Bridge Road í Hull á Englandi árið 1900 fyrir Humber Steam Trawling Co Ltd í Hull, hét þá Pointer H 513. 228 brl. 400 ha. 3 þennslu gufuvél. 125 ft. á lengd, 22 ft. á breidd og djúprista 12 ft. P.J. Thorsteinsson & Co hf (Milljónafélagið) í Reykjavík og í Kaupmannahöfn keyptu skipið í Hull í júnímánuði árið 1907. Skipið var selt í mars 1914, Hlutafélaginu Snorra Sturlusyni í Kaupmannahöfn. Keypt aftur til landsins 24 apríl 1915 og var þá í eigu Thors Jensen útgerðar og kaupmanns í Reykjavík. Togarinn var svo seldur til Englands aftur árið 1919-20.
Hún er athyglisverð frásögnin eftir Guðmund Björnsson landlækni, sem birtist í Lögréttu sumarið 1910 sem kallast "Sumarnótt á Sviði" Þar fór landlæknir í stutta sjóferð á Snorra Sturlusyni og þar var þá skipstjóri Björn Ólafsson í Mýrarhúsum. Þar kemur orðið "togari" fyrst fram. Hún er hér fyrir neðan á síðunni.
"Nafnið "Milljónafélagið" sem almannarómur gaf hlutafélaginu vegna ákvæðisins í félagslögunum um að hlutafé þess væri 1 milljón króna. Það var aldrei sannefni og þaðan af síður hitt, sem ófróður ímyndaði sér, að félagið hefði slíka upphæð til ráðstöfunar í reiðufé. Stærstu hluthafarnir, P.J. Thorsteinsson og Thor Jensen höfðu lagt fram miklar eignir, Aage Möller fékk hlutabréf fyrir "goodwill", þ.e. viðskiptasambönd, sem hann lagði fram víða í Evrópu, en hélt þó áfram að heimta umboðslaun af fisksölum til Spánar til fyrirtækis síns, A.T Möllers & Co í Kaupmannahöfn. Hlutabréf til annarra en stofnefnda seldust dræmt, og reiðufé félagsins var því frá upphafi lítið. Til rekstursins varð það því að treysta lánstrausti sínu fyrst og fremst hjá bönkunum í Kaupmannahöfn"
Heimild: Ævisaga Thors Jensen. Framkvæmdaár. Valtýr Stefánsson 1955.
B.v. Snorri Sturluson RE 134 á ytri höfninni í Reykjavík. (C) Magnús Ólafsson.
B.v. Snorri Sturluson
Nýjan botnvörpung hefir P. J. Thorsteinssonsfélagið eignast nýlega frá Englandi, ekki nýsmíðaðan þó, heldur 7 ára, á stærð við Marz. Skipstjóri er Guðbjartur Jóakim Bjarnason og skipshöfn öll íslenzk, nema vélstjórar (enskir). Skipið hefir verið skírt Snorri Sturluson. Það lagði á stað héðan í gær til veiða.
Ísafold. 22 júní 1907.
B.v. Snorri Sturluson RE 134 á Reykjavíkurhöfn. Mynd á póstkorti í minni eigu.
Hafskipabryggja "Milljónafélagsins" í Viðey. Fyrir miðri mynd er kútter Björn Ólafsson GK 21. Kaupskip og togari við bryggjuhausinn. (C) Magnús Ólafsson.
Sumarnótt á Sviði
Sumarið 1910 birtist í Lögréttu frásaga eftir Guðmund Björnsson, landlækni, sem hann kallaði "Sumarnótt á Sviði". Þar lýsir hann vel og skemmtilega veiðiför með íslenzkum togara út í Faxaflóa. Er þar brugðið upp góðum myndum frá togaraútgerðinni, eins og hún var hér fyrstu árin. Þegar grein þessi var rituð, skorti íslenzk orð yfir marga þá hluti, sem notaðir voru við togveiðar á botnvörpuskipum, og sjást þess nokkur merki á greininni, að landlæknir hefur leitað hentugra orða íslenzkra, í stað hinna erlendu heita. Fullvist mun það vera, að í þessari ferð myndaði Guðmundur Björnsson orðið togari, en það hefur rutt sér til rúms og útrýmt orðunum trollari og botnvörpungur, sem áður voru notuð. - Grein Guðmundar Björnssonar fer hér á eftir, lítið eitt stytt.
Ef litið er til hafs að kvöldi dags ofan frá Skólavörðu, má sjá mikinn skipaflota úti á miðjum Faxaflóa og reykjarmökk yfir hverri fleytu, því að allt eru þetta eimskip. Það eru "trollararnir". Orðið er komið úr ensku, en enska orðið úr frönsku. - Orðin botnvörpuskip og botnvörpungar hafa ekki náð fótfestu í mæltu máli; þau eru of löng. En sjómenn hafa sjálfir fundið orð, sem vel á við; þeir segja: að toga; "þarna er einn að toga", "við togum venjulega tvo eða þrjá tíma í senn", segja þeir. Orðið er ágætt, merkingin söm og í enska orðinu trawl. Við ættum því að segja togari, en ekki trolari, toga í stað trola og tog eða tognet í stað trawl. Þessi skip eru að ýmsu leyti frábrugðin öðrum fiskiskipum. Vinnan er ekki hættulaus. Menn slasast oft. Þeir kenna oftast járnreipunum um slysin. Það eru reipin, sem liggja út af skipinu og teyma netið. Þegar skipið tekur í þessa tauma af öllu afli, má nærri geta, að ekki muni holt að verða fyrir þeim; þeir skella þá oft fingur af mönnum. Eru þau sár því líkust sem þau væru eftir axarhögg. Þess konar meiðsli hef ég oft séð, líka beinbrot og hold marið frá beinum. Ekki alls fyrir löngu bar það við á enskum togara, að annar nettaumurinn kippti mann í sundur, af fót og mjöðm öðru megin, svo að maðurinn dó samstundis. Mér hefur því leikið hugur á að sjá þessa veiðiaðferð, vita, hvort ekki mundi gerlegt að komast hjá þessari meiðslahættu.
Hafskipabryggjan í Viðey. Togarinn sem liggur við bryggjuhausinn er sennilega Snorri Sturluson RE 134. Þetta var eina bryggjan við Faxaflóann og jafnvel víðar sem mátti teljast bryggja fyrir hafskip. Hún var um 80 m. á lengd, 6 á breidd og bryggjuhausinn var um 30 metrar, en var lengdur síðar. Hún var byggð sumarið 1907.
Um þetta leyti árs eru íslenzku togararnir við veiðar á nóttum, en liggja í höfn á daginn. Fyrir skömmu fór ég út á einum þeirra næturlangt. Þá gaf mér á að líta. Togarar eru borðlágir. Lyfting er miðskipa. í henni er íbúð formanna aftast, þá gangvél skipsins, en fremst, fyrir framan rykberann, stendur stýrisklefi upp úr lyftingunni, með gluggum á alla vegu. Þar er stýrishjólið og þar er skipstjóri jafnan, þegar skipið er á ferð. Niðri á þilfarinu, rétt fyrir framan lyftinguna, er stórvindan. Henni snýr gufuvél. Á vinduásnum sitja tvær feiknastórar spólur, um þær er vafið járntaumunum, sínum á hvora spóluna. Taumarnir ganga af spólunum fram eftir miðju þilfarinu, kringum tvo uppstandara úr járni nálægt framstafni og þaðan aftur á við og út á borðstokk, sinn í hvorn hlera. Eru tveir hlerar á hvort borð og hanga utanborðs þegar skipið er búið að veiða, annar fram á, hinn aftur á skipinu. En tognetin liggja þá innanborðs og jafnan tvö til taks, sitt hvoru megin, milli lyftingar og borðstokka. Hvert net er í laginu eins og heljarstór botnlangi. Nær opið milli hleranna og er áfast við þá. Þegar toga skal, hangir það nú fyrst á munnvikum sínum, sem fest eru sitt við hvorn hlerann; þá eru taumarnir settir gegnum kengi á borðstokknum og festir í hlerana, þeim síðan hleypt niður í sjóinn 10 faðma; því næst er skipið skrúfað áfram og gefnir út taumarnir af vinduspólunum, meira eða minna eftir dýpi. Heldur nú skipið leiðar sinnar; dregst netið eftir botninum; er hlerunum svo hagað, að þeir standa á ská í vatninu og gapa móti straumnum þegar skipið gengur; spyrnir straumurinn þeim út til hliðanna; opnast þá netið og strengist efri vör þess beint milli hleranna; en neðri vörin er miklu lengri; hún slapir niður og lepur það sem fyrir verður á sjávarbotninum. Á þilfarinu framanverðu eru fetháar stíur, ferhyrnar, 5 eða fleiri. Niður í þær er fiskinum hleypt úr netinu, þegar það er innbyrt. Þegar taka á upp netið, er skipið stöðvað og snúið svo, að netið verði á kulborða. Þá er vindunni hleypt á stað og vindur hún taumana upp á spólurnar þar til hlerarnir koma upp á hástokkinn, annar fram á, hinn aftur á. Þeir eru í kjaftvikum netsins, eins og áður er getið.
Saltfiski landað úr togara á Hafskipabryggjunni í Viðey. (C) Magnús Ólafsson.
Er nú tekið í neðri vör netmunnsins, sem nær er borðstokknum, og hún dregin upp á borðstokkinn og því næst efri vörin. Ef Iítið er í netinu af fiski, er það togað inn yfir borðstokkinn mestallt; hrökklast þá fiskurinn niður í pokabotn, er þá brugðið taug utan um pokann, eins og fyrirbandi, fyrir ofan veiðina, sú taug fest í sigludragreipi og pokaendinn dreginn upp svo hátt, að hann sveiflast inn á þilfarið og hangir þar í lausu lofti. Er þá losað um bönd í pokabotninum, svo að op verður, og veiðinni hleypt niður í stíurnar á þilfarinu. Ef mikið er í voðinni, t. d. mikið á annað þúsund af vænum þorski, verður að toga upp veiðina í tvennu lagi; er þá skipið skrúfað ögn aftur á bak; leggst þá netlanginn fram með skipshliðinni; er bandinu brugðið um hann miðjan, veiðin helminguð, pokabotninn innbyrtur, opnaður, tæmdur, lokað aftur, fleygt út til að taka í sig það sem eftir var, og það svo innbyrt á sama hátt. Þá segja togarar, að þeir hafi fengið "tvo poka". Þegar bezt lætur, fá þeir 3 eða 4 poka í einum drætti.
Sumarnótt á Sviði.
Lengjast skuggar, lækkar sól,
leggjum út á Svið;
óþarft er að gefa
þeim gula næturfrið.
Köstum voð, tökum tak,
togum út við hraun;
aldrei bregðast aflamönnum erfiðislaun.
Fullt dekk af fiski og nokkrir pokar eftir ennþá við síðuna. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Sólin var komin í miðaftansstað; veðrið var fagurt og blítt, sunnan andvari, glitaðar gárur á sjónum, en blámóða á fjöllum. Margir bátar flutu við bryggjuna og var þar margt um manninn, sumir að vinna, aðrir að spjalla og spjátra sig. Við einn bátinn stóðu tveir menn, kyrrir og þögulir. Þangað stefndi ég göngu minni. "Eruð þið Snorrungar?" Þeir brostu, kinkuðu kolli og bentu mér niður í bátinn, hlupu undir árar og réru knálega út á miðja höfnina að togara sem þar lá og bar nafnið Snorri Sturluson. Þangað var ferðinni heitið. Skipstjórinn var góður vinur minn, ungur maður, Björn að nafni Ólafsson frá Mýrarhúsum. Hann hafði boðið mér að koma með sér eina nótt út á Svið og sjá, hvernig þeir færu að toga þann gula upp úr sjónum, hann og Snorri. Mér var vísað til hans upp í stýrisklefann, fremst í lyftingunni. Snorri var ferðbúinn. Hlerarnir héngu utanborðs, tveir á hvort borð, fram á og aftur á, eins og feiknastórir skildir, en netin lágu samanbrotin fram með hástokkunum milli framhlera og afturhlera, sitt hvorum megin við lyftinguna, og voru á að líta eins og gamlar, ryðgaðar hringabrynjur. Reykjarstrókurinn stóð í háa loft upp úr reykberanum. Hásetar stóðu hljóðir á þilfari. Mér var sem stæði ég á herskipi og ætti að leggja til orustu. "Akkerið upp!" sagði skipstjóri - hann sagði það skýrt og skorinort, en æpti ekki, eins og skipstjórum er títt á útlendum skipum. Óðar en hann hafði sleppt orðinu, tók að ymja í vindunni, og fyrr en mig varði var akkerið komið upp. Þá þreif skipstjóri í vélsveifina og sendi bendingu niður í skipið til vélstjórans. Kvað þegar við strokkhljóð úr vélinni og buslugangur undan bakstafni. Snorri skrúfaði sig á stað, fyrst í hægðum sínum, en innan stundar af öllu afli, út úr höfninni, út sundin.
Flattur fiskur í stæðum á dekki í tonnatali. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Hásetar hurfu af þilfari, gengu til hvíldar. Einn varð eftir í stýrisklefanum og stýrði eftir fyrirsögn skipstjórans. Mér varð fyrir að spyrja um ætt Snorra og uppruna. Hann er 10 vetra og enskur að uppruna; áttu hann fyrst enskir menn; bar hann þá enskt nafn; ekki veit ég, hvort hann hét Georg, Andrés eða Patrekur; en það er kunnugt, að hann var þá mesti ólánsbelgur, fékk aldrei seiði úr sjó; er það trú sjómanna, ef skip fiskar illa í fyrstu, þá verði það aldrei heppið. "Hann er mátulegur handa Mörlandanum", hugsaði Jón Boli, og varð guðsfeginn að geta selt þennan togara, sem ekkert gat togað úr sjónum. Viðeyingar (P. Thorsteinsson & Co.) keyptu hann og höfðu út hingað; var hann nú kristnaður á íslenzku og kallaður Snorri Sturluson. Var svo að sjá í fyrstu, sem hinar ensku spárir mundu rætast, og byrðingurinn gera nafninu skömm. Þá var forustan fengin í hendur Birni Ólafssyni, og síðan hefur Snorri aflað á við þá togara, sem frægastir eru. Björn var áður formaður á seglskipi, alkunnur dugnaðarmaður. Varð hér sú raunin á, að íslenzkur dugnaður mátti sín meir en enskar hrakspár og Mörlandinn hamingjudrýgri en Jón Boli. Ég hef sannar sögur af því, að engir enskir togarar afla eins vel og íslenzku togararnir, þeir, sem nú kveður mest að. Við vorum komnir út fyrir Akurey. Í vesturátt, undir sól að sjá, kom ég auga á skiparöð; þau voru um tuttugu að tölu, öll með þríhyrnu á aftursiglunni, allt togarar, sumir íslenzkir, aðrir enskir, en þó flestir franskir í þetta sinn. Á sumum var farið að rjúka, en margir voru ekki farnir að hita á kötlunum. "Það er ekki til neins að toga, um þetta leyti árs, fyrr en eftir náttmál", sagði Björn mér. Okkur bar fljótt að. "Hvar eru nú landhelgismörkin ?" spurði ég. "Nú eru þau bak við okkur", svaraði skipstjórinn. Rétt á eftir gekk hann að flautulegg, sem lá úr stýrisklefanum niður til hásetanna, og blés í legginn. Það nam engum togum; í einni svipan stóðu hásetar albúnir á þilfarinu. Þeir höfðu legið í öllum fötunum. Skipið var stöðvað. "Netið út á bakborða". Hásetar þustu til, röðuðu sér með borðstokknum og ruddu netpokabákninu útbyrðis. Nú hékk þessi heljar botnlangi niður í sjóinn með ginið upp og munnvikin áföst við hlerana; járntaumarnir af stórvindunni voru nú hespaðir við borðstokkinn og festir í hlerana, en milli þeirra er mjög stórt bil. Var nú vindan losuð og hlerunum hleypt niður 10 faðma. Því næst var skipinu hleypt á stað og gefnir út taumarnir, svo tugum faðma skifti. "Nú togum við", sagði skipstjórinn. "Hvar erum við?" "Við erum á Sandhala", sagði hann, "og hér er kveikjulegt í kvöld". Það kalla sjómenn kveikjulegt, ef mikið er af fugli, einkum svartfugli. Þar er síli og fiskvon. Veslings sílið. Fugl bítur að ofan, en fiskur að neðan.
Karlinn í "hólnum" fylgist með mönnum sínum bæta druslurnar. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Fuglinn sá ég, en engan sandhala; hann tók ég trúanlegan. Ég veit að Sviðið er geysistórt fiskimið í miðjum flóanum; þar þekkja sjómennirnir okkar hvern blett, allt miðað við landsýn, og vita hvernig botninn er á hverjum stað og hafa ótal örnefni. Hraun er í botninum út allan flóa að sunnanverðu við Sviðið. Togarar verða að varast hraunið, til þess að rífa ekki netin. Nú er oft mestur fiskur út við hraunbrúnirnar. Vandinn er að þekkja þær og þræða með þeim. Snorri togar og togar. Hásetar eru engir uppi. Nú eru öll hin skipin farin að toga. Sólin er sezt; vindinn lægir; nú tekur að dimma í lofti; allt hljóðnar; það líður að lágnætti. En skipstjórinn vakir. Hann horfir til lands, sívakandi, síhugsandi, og heldur skipinu í einlægar bugður og króka. Hásetar taka hvíld, en hann vinnur. Hann er veiðimaðurinn. Undir honum er það komið, kunnugleik hans, árvekni og hyggindum, hvað vel gengur. Þetta hringsól villir um mig hvað eftir annað, svo að ég tapa áttum. Nú sé ég dufl, og á því rifrildi af frönskum fána. þess konar dufl hafði ég séð á Sandhalanum. "Við erum þó ekki komnir á Sandhalann aftur?", spurði ég. "Það er rétt til getið", sagði skipstjórinn, ,,og nú er bezt að sjá hvað komið er". Nú var kallað á háseta og netið innbyrt. Og veiðin? Allmikið af sundurtættum þorskhausum og tveir hálfdauðir steinbítar í pokahorninu, það var öll veiðin eftir þriggja tíma tog. Henni var óðar mokað aftur í sjóinn. "Það er ekki öll nótt úti enn", sagði Björn, hleypti Snorra á sprett góðan spöl vestur á bóginn og kastaði þar aftur út. Ég hefi aldrei heyrt að læknar séu til bölvunar á sjó, eins og prestarnir, en nú fór mig að gruna margt. "Nú fer ég og legg mig, meðan þið eruð að toga", sagði ég við skipstjóra. "Ég ætla að vita, hvort mig dreymir ekki fyrir einhverju öðru en úldnum þorskhausum". Svo fór ég niður og lagðist fyrir og bað fallega sjómannsbæn:
Mardöll á miði
í myrkbláum sal,
seiddu nú að Sviði
sækinda val;
láttu fara í friði
fengsælan hal.
Fullt dekk af fiski. Myndin er tekin um borð í Garðari GK 25. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Síðan sofnaði ég. Mig dreymdi að allir þorskhausarnir væru orðnir að stórum fallegum skipum, krökt af þeim á flóanum, brunandi út og inn, og öll með íslenzka veifu við efsta hún. Og margt dreymdi mig fleira, sem ég segi engum frá. Loks hrökk ég upp við hrikt í vindunni. Hamingjan góða; skyldu déskotans"þorskhausarnir vera að ráðast til uppgöngu aftur. Ég þaut á fætur og upp á þilfar. Vindan másaði og vatt utan um sig járntaumunum. Innan skamms komu hlerarnir upp á borðstokkinn, annar fram á, hinn aftur á. Milli þeirra sá í opið á netpokanum. Var nú losað frá fremra hleranum band, sem þaðan gengur í neðri vör netmunnsins, þá sem slapir og lepur af botninum þegar togað er, og liggur nær skipshliðinni, þegar upp er dregið. En hvað er þetta? Allt í einu bólar á löngum dröngul, afar gildum, eins og einhverjum heljar botnlanga, beint út úr skipshliðinni. Það var ekki missýning. Þetta var netpokinn, fullur af gulhvítum stórþorskum. Nú er komin afturelding og aftur líf. Ritur og mávar komu í loftinu úr öllum áttum og 3 togarar sinn úr hverri áttinni á sjónum, til að bera sig eftir björginni. Snorrungar fylktu sér með borðstokknum, tylft manna, til að draga inn netið. Þegar útlendir menn eru margir um eitt átak, æpa þeir jafnan um leið og þeir taka á. Þessir þögðu. Þeir þrifu í möskvana allir í senn, krepptu hnefana og tóku tak, allir í einu, upp aftur og aftur, sem einn maður, alveg hljóðalaust. Þegar netopið var komið vel inn fyrir borðstokkinn, var skipið skrúfað ögn aftur á bak, svo að netlanginn lagðist fram með hliðinni. Var nú brugðið bandi um hann, nær botni en opi, og pokabotninn dreginn upp á skipið með sigludragreipinu og í honum hér um bil helmingur aflans. Þá var losað band, gert op á pokabotninn og hleypt úr honum, lokað aftur, kastað út, til að taka á móti því sem eftir var í langanum, og það svo innbyrt á sama hátt. Þessu var brátt lokið, vörpunni aftur kastað út, tómri, skipið sett á stað, gefnir út taumarnir og farið að toga. Nú áttu hásetarnir nóg að vinna. Þarna lá hátt á annað þúsund af stórþorski í stíunum á þilfarinu, sumir dauðir, flestir í fjörbrotunum. Sumir hásetanna fóru til og skáru á kverkina á hverjum fiski, til þess að úr þeim rynni blóðið. Aðrir tóku við og skáru af hausana og fleygðu í sjóinn. Allir hömuðust. Enginn mælti orð frá munni. Svo voru borð reist og farið að gera að, þvo fiskinn og fleygja honum niður í lestina, til tveggja háseta, sem tóku við og söltuðu. Mér varð starsýnt á þessi vinnubrögð; ég gáði á klukkuna og sá einn mann fletja þrjá stórþorska á einni mínútu.
Pokinn tekinn inn og tæmdur. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Öllu innvolsi var fleygt í sjóinn, nema lifrinni. Hana fá skipverjar í kaupbæti. Sá kaupbætir getur numið 2-4 kr. á mann á sólarhring, þegar vel veiðist. "Hvaðan af Sviðinu kom okkur þessi fengur?" spurði ég skipstjórann. "Ég kastaði á Kambsleiru", svaraði hann, "togaði vestur Lága Múlann, snéri um Háa Múlann og aftur inn í Kambsleiru". Ég var litlu nær. "Hvað hefur Snorri fengið mest í einu togi?" "5000 mest, það voru 4 pokar". "En hvað hefur komið mest á sólarhring?" "11 ½ þúsund fengum við einu sinni". 5000 þúsund í einum drætti mun vera eins dæmi meðal togara. Ég undraðist ákefð og verklægni hásetanna. "Góðir menn, ágætir menn", sagði skipstjóri, "geta vakað og unnið svo dægrum skiftir, án þess að guggna". Eftir stutta stund var allur fiskurinn kominn í salt, 1600 af vænsta þorski. Í næsta togi fengum við 100 í viðbót. Var nú netinu kastað í fjórða sinn og togað góða stund. , Við íslendingar erum undarlega skapi farnir. Það er sagt um marga unga menn til forna, að þeir voru efnilegir í bernsku, en lögðust svo í öskustó og höfðust ekkert að fram undir fullorðins aldur, og þóttu til einskis nýtir; en oft fór svo um síðir, að þeir risu úr öskustónni og urðu afbragð annara manna. íslenzka þjóðin var efnileg í bernsku. Síðan hefur hún legið í öskustó. Nú er hún að rísa á fætur og hrista af sér larfana. Hún er enn ung. Hún getur enn orðið afbragð annara þjóða. Það er mín trú, að þetta muni rætast. Ef enginn trúir því, rætist það aldrei. Það er sagt, að Mörlandinn sé skussi og kunni ekki að vinna. Ég hef það eftir sannorðum manni, að einu sinni fyrir skömmu voru 10 menn að moka upp úr hússtæði í Reykjavík. "Ég sá til þeirra út um glugga", sagði hann, "og tímum saman voru aldrei nema tvær skóflur á lofti í einu, hinir voru að spjalla og taka í nefið". Annar kunningi minn segist hafa setið að gamni sínu og horft á trésmið, sem var að leggja undirgólf milli bita í nýreistu húsi. "Hann var fulla klukkustund að negla 4 stuttar fjalir, 4 nagla í hverja fjöl; þetta var við alfaraveg; hann var síkjaftandi við þá, sem um götuna gengu". Þessir menn eru ekki risnir upp úr öskustónni. Þó er nú margur kominn á legg, og það verð ég að segja, að ég hef hvorki utan lands né innan séð fríðari og röskari verkamannasveit, en skipshöfnina á Snorra Sturlusyni. Á því skipi er enginn útlendur maður. Það er sagt um Þorbjörn Kólku landnámsmann, að hann hafi róið einn á steinnökkva frá Hafnabúðum á Skaga og róið lengra en allir aðrir. Hann hafði til að beita á öngli sínum "Fóhorn og flyðrugarnir, mannaket í miðjum bug og mús á oddi", segir gömul þjóðsaga í Húnavatnssýslu. Hann var afburðamaður, en einrænn og ekki orðmargur; og því líkir voru margir ættfeður okkar Íslendinga. Því líkir eru margir íslendingar enn í dag, ef þeir hafa sig upp úr öskustónni.
Dekkið "smúlað", sennilega á landleið. Takið eftir vara toggálganum sem bundinn er við s.b. toggálgann.
(C) Guðbjartur Ásgeirsson.
Bátstjórinn á Snorra minnti mig á Þorbjörn Kólku. Ég þekki hann ekki og veit ekki hvað hann heitir, en íslenzki ættarsvipurinn leyndi sér ekki. Hann var í hærra meðallagi, þrekinn mjög, rjóður og búlduleitur, íbygginn og alvörugefinn, gætti verka sinna og gáði ekki annars. Skipstjóri sagði, að sá maður stæðist hverja raun. Nú hrökk ég upp úr hugsunum mínum, heyrði rymja í vindunni. Þegar ég kom upp, var verið að innbyrða netið í fjórða sinn, og var ekkert í því nema fáeinir nýir þorskhausar, "líklega þeir sem við köstuðum út í nótt", sagði skipstjóri. Það var komið fram yfir miðjan morgun, og Snorri snéri nú til lands. Þennan morgun var sumar á sjó og landi, sunnanvindur hægur og hlýr, og sól í austri, en skýflókar á lofti, svo að skugga bar víðast á láglendið og var sem sæi á myrkan skóg með björtum rjóðrum.
Landsýnin af Sviði er ein hin fegursta við Íslands strendur. Ef litið er inn flóann, má sjá á vinstri hönd "þrjú fjöll há og dali í öllum", eins og segir í Kjalnesingasögu. Það er Skarðsheiði, Akrafjall og Esjan. Til hægri handar sér í Reykjanesfjallgarðinn. En beint fram undan getur að líta nes og eyjar, og þar upp af hæðótt láglendi, víðáttumikið, og bak við það Hengilinn. Þess gætir ekki af sjónum, að landið er hrjóstrugt. Togararnir okkar eru að verða þjóðinni til stórsóma með dugnaði sínum. Ef þið trúið mér ekki, þá farið og gistið hjá þeim eina sumarnótt úti á Sviði.
Sjómannablaðið Víkingur. 11-12 tbl. 1 desember 1947.
17.11.2019 12:25
B. v. Leifur heppni RE 146. LCHW.
Botnvörpungurinn Leifur heppni RE
146 var smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi árið 1920
fyrir Firmað Geir & Th. Thorsteinsson í Reykjavík. Kom í fyrsta sinn til
heimahafnar, Reykjavíkur þann 8 apríl sama ár. 324 brl. 600 ha. 3 þennslu
gufuvél. 136 x 23,3 x 10,7 ft. Smíðanúmer 734. Skipstjóri á Leifi heppna var Gísli Magnús Oddsson og var hann einn af
eigendum hans. Togarinn fórst út af Vestfjörðum ásamt Hellyerstogaranum
Fieldmarshal Robertson H 104, í Halaveðrinu mikla, 7 eða 8 febrúar árið 1925
með allri áhöfn, 33 mönnum. Ein hörmulegustu sjóslys við Íslandsstrendur fyrr
og síðar.
Það var í enduðum maí árið 2016 að togarinn Sturlaugur H Böðvarsson AK var að veiðum á Halamiðum, að upp kom í veiðarfærum hans hlutar af flaki skips. Það er best að gefa skipstjóranum á Sturlaugi H Böðvarssyni AK 10, Eiríki Jónssyni orðið, en þetta er hluti af grein sem birtist í Sjómannadagsblaðinu 2021;
. "Við vorum að fara í land og maður vissi svona nokkurn
veginn hvað þetta var og fannst ómögulegt að fara að henda þessu," segir hann.
Þar fyrir utan hafi verið svolítið merkilegt að fá þetta upp. Skipið var á
þorskveiðum rétt sunnan við Halann. "Við vorum að draga þarna 31. maí 2016
þegar við festum," segir Eiríkur eftir að hafa ráðfært sig við dagbókina sem
hann hélt upp á úr Sturlaugi, en árið eftir var skipið aflagt. "Við vissum að
það var eitthvað þarna, en það vissi enginn nákvæmlega hvað." Trollið var hins
vegar pikkfast og af því að þetta var á grunnu vatni segir Eiríkur að úr hafi
orðið að þeir skæru frá og skildu það eftir. Skipið hélt svo veiðunum áfram en
kom aftur daginn eftir.
"Þá fórum við að slæða og fengum þetta
allt upp og svo trollið líka í kjölfarið. En þetta var heljarmagn, einhverjir
tuttugu metrar af lunningu, boxalok og partur úr dekki." Vel gekk líka að ná
trollinu þegar krækt var í það. "Við fundum það þarna rétt vestan við.
Sennilega höfum við bara krækt gröndurunum í flakið því þegar við settum í
trollið var það alveg laust." Grandararnir voru langir og trollið aldrei alveg
í flakinu. "Eina vitið var að gera þetta svona. Annars hefði endað með að maður
hefði slitið þetta allt aftan úr, eða hlera eða einhvern fjandann. Þá var þó skárra
að skilja trollið eftir. En við náðum því aftur og það var nokkuð heillegt
þegar það kom upp." Skipið hélt svo í land 2. júní og landaði á Ísafirði næsta
dag. "Þannig að við vorum með þetta á dekkinu í tvo daga." Á Ísafirði voru
hlutarnir úr flakinu hífðir upp á bryggju og Byggðasafn Ísafjarðar tók þá til
handargagns. "Ekki kom annað til greina en að þetta væri annaðhvort úr Leifi
heppna eða Field Marshal Robertson. Það mátti ráða bæði út af staðsetningunni
og svo aldrinum á þessu flaki. Þetta er allt hnoðað og boltað saman, en ekki
soðið eins og ef skipið hefði verið yngra. Það var ljóst að þetta væri mjög
gamalt."
Það var svo út af öðru óskyldu máli sem Eiríkur var í sambandi við Egil
Þórðarson loftskeytamann og í samtali þeirra kom fram að Egill væri að grúska í
Halaveðrinu. "Og ég fór þá að segja honum frá þessu flaki sem við hefðum fengið
upp og teldum að væri annaðhvort af Leifi heppna eða Field Marshal Robertson."
Ekki er hins vegar hægt að slá nokkru föstu um hvoru flakinu þeir festu í. "En
núna vitum við að minnsta kosti nákvæmlega hvar bæði flökin eru." Og út frá
gögnunum um leitina sem fram fór af skipunum segir Eiríkur að sjá megi að siglt
hafi verið nánast beint yfir staðinn þar sem þau lágu og lengst suður í haf.
Halaveðrið var mannskaðaveður sem olli tjóni víða um land og lenti fjöldi báta
og skipa í vandræðum. Veðurspár voru ekki eins og gerist í dag og veður hafði
verið gott áður en brast á með ósköpunum. Skörp hitaskil á milli Íslands og
Grænlands urðu til þess að lægðin dýpkaði og dýpkaði og telur Eiríkur að skipin
hafi ekki mátt sín mikils í veðrinu. "Þetta voru engin úthafsskip og máttu ekki
við miklu. Robertson var smíðaður sem tundurduflaslæðari sem breytt var í
togara. Og út af kolaplássi sem fór fram í lestina fór allur aflinn svo framarlega
í skipin að þau voru alveg á nösunum. Þetta voru ekki stór skip, 45 metra löng
og rúmir sjö metrar á breidd og mjög lág á sjónum." Á milli flakanna eru um það
bil fjórar til fimm mílur, segir Eiríkur. "En eitt er svolítið skrítið, því
eins lengi og ég er búinn að vera á togara þá var alltaf þarna í vesturkantinum
á Djúpálnum flak merkt sem Leifur heppni. Nú er búið að staðfesta að það er
bara þvæla. Þar er ekki neitt neitt, bara einhver festa."
B.v. Leifur heppni RE 146 með trollið á síðunni. Ljósmyndari óþekktur.
Nýr botnvörpungur
"Leifur heppni"
Í fyrradag kom hingað frá Englandi nýtt botnvörpuskip, eitt
enn í viðbót við þau sem komin eru í vetur. Skip þetta heitir "Leifur
heppni" og er eign þeirra Geirs Thorsteinsson og Th. Thorsteinsson. Er það
smíðað í Selby hjá Cochrane & Sons, sömu skipasmíðastöðinni er smíðað hefir
hina þrjá nýju botnvörpunga Kveldúlfsfélagsins.
Skip þetta er 140 fet á lengd og á að vera af líkri gerð og "Egill
Skallagrímsson", að flestu leyti. Var því lofað í ágústmánuði í sumar sem leið,
en smíðin hefir tafist af ýmsum orsökum, meðal annars tafðist skipssmíðin í
fjóra mánuði vegna verkfalls stálsteypumanna. Skipstjóri hinns nýja
botnvörpungs verður Gísli Oddsson og hefir hann dvalið í Englandi undanfarna
mánuði og beðið skipsins.
Morgunblaðið. 10 apríl 1920.
B.v. Leifur heppni RE 146 á toginu. (C) Snorri Snorrason.
B.v. Leifur heppni RE 146 á leið í slipp í erlendri höfn. (C) Guðbjartur Ásgeirsson.
B.v. Leifur heppni RE 146 á toginu. (C) Guðbjartur Ásgeirsson. ?
Veðrið mikla
Það brast á íslenzka flotann, sem þá var vestur á »Hala«, um
hádegi á laugardaginn 7. febrúar. Varð það með svo skjótri svipan, að slíks
munu ekki þekkjast dæmi, enda umhverfðist sjórinn í einu vetfangi, og ekki var
hægt að ráða við neitt. Hið síðasta, sem menn vita um þá »Leif heppna« og
»Robertson«, er það, að þeir voru skammt hvor frá öðrum, þegar veðrið skall á,
en skip þau, er næst þeim voru, misstu brátt sjónar á þeim. Veðrið hélzt
óbreytt í hálfan annan sólarhring, en þá tók því heldur að slota. »Leifur
heppni« var með talsverðan afla, en um hitt skipið vita menn síður, hvort það
hafði veitt nokkuð að ráði.
Á »Leifi heppna« voru þessir 33 menn:
Gísli M. Oddsson, skipstjóri, Skólavörðustíg 3 B.
Ingólfur Helgason, 1. stýrimaður, Hafnarflrði.
Ásgeir Þórðarson, 2. stýrimaður, Bergstaðastræti 37.
Valdemar Árnason, 1. vélstjóri, Hverfisgötu 16.
Jón Halberg Einarsson, 2. vélstjóri, Njálsgötu 39 B.
Magnús Brynjólfsson, loftskeytamaður, Lindargötu 14.
Jón Cornelius Pétursson, bátsmaður, Vesturgötu 25 B.
Ólafur Jónsson, matsveinn, Laugavegi 38.
Sigmundur Jónsson, háseti, Laugavegi 27.
Stefán Magnússon, háseti, Njálsgötu 32 B.
Jón Guðmundsson, háseti, Frakkastíg 23.
Ólafur Gíslason, háseti, Hverfisgötu 32.
Þorbjörn Sæmundsson, háseti, Bergþórugötu 4.
Oddur Rósmundsson, háseti, Bergþórugötu 7.
Ólafur Brynjólfsson, háseti, Lindargötu 14. (bróðir Magnúsar loftskeytamanns)
Jónas Guðmundsson, háseti, Akranesi.
Sveinbjörn Elíasson, háseti, Bolungarvík.
Sigurður Guðmundsson, háseti, Önundarfirði.
Sigurjón Jónsson, háseti, Bergstaðastræti 30 B.
Helgi Andrésson, háseti, Mjóstræti 4.
Jón Sigmundsson, háseti, Laugaveg 50.
Jón Hálfdanarson, háseti, Hafnarstræti 18.
Randver Ásbjörnsson, háseti, Rauðarárstíg 9.
Jón Jónsson, háseti, Austurstræti 11.
Sigurður Lárusson, háseti, Bröttugötu 6.
Sigurður Jónsson, háseti, Miðstræti 8 B.
Sigurður Albert Jóhannesson, háseti, Hávallagötu 16.
Sveinn Stefánsson, háseti, Miðhús í Garði.
Þorlákur Einarsson, háseti, Rúfeyjum, Breiðafirði.
Jón Sigurðsson, háseti, Sveinseyri, Dýrafirði.
Ólafur Þorleifsson, kyndari, Vatnsstíg 4.
Björgvin Kr. Friðsteinsson, kyndari, Laufásvegi 27.
Jón Stefánsson, Sauðagerði C.
Af skipshöfninni á »Leifi heppna* voru 12 menn kvæntir og láta eftir sig 31
barn. Helgi Andrésson var faðir 1. stýrimanns. Hann var gamall þilskipsformaður
að vestan. Fyrir mörgum árum hvolfdi undir honum hákarlaskipi; velti skipið sér
um kjöl og reisti sig aftur á hinn bóginn, og missti Helgi engan mann. Mun
slíkt einsdæmi hér á landi og þótt víðar sé leitað. Magnús Brynjólfsson og
Ólafur Brynjólfsson voru bræður. Ólafur Gíslason var bróðir Guðmundar G.
Hagalíns skálds. Flestir af þessum mönnum voru á bezta aldri.
»Leifur heppni« var smíðaður í Selby hjá Cochrane & Son, er smíðað hefir
marga hinna íslenzku botnvörpunga. Skipið var 140 feta langt og 24 feta breitt,
og var að rúmmáli 333 smál.
Dagblað. 1 árgangur 32 tbl. 10 mars 1925.
13.11.2019 17:46
2963. Harðbakur EA 3. TFCV.
2963. Harðbakur EA 3 TFCV við bryggju á Akureyri.
2963. Harðbakur EA 3.
2963. Harðbakur EA 3 á Pollinum á Akureyri.
Nýr Harðbakur sjósettur í Noregi
Nýr togari Útgerðarfélags Akureyringa, sem hefur
verið í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Vard-Aukra í Noregi, var sjósettur í dag.
Nýji togarinn mun hljóta nafnið Harðbakur og fær skrásetningarnúmerið EA 3.
Þetta nafn og númer hafa togarar ÚA áður farsællega borið. Samningur um smíðina
var undirritaður í lok nóvember árið 2017. Skipið er hannað af Vard
samsteypunni í Noregi í samvinnu við eigendur og er eitt af sjö skipum sem
fjórar íslenskar útgerðir tóku sig saman um að láta smíða.
Skipin eru 28,95 metra löng og 12 metrar á breidd og eru smíðuð samkvæmt
íslenskum reglum og kröfum flokkunarfélagsins DNV GL. Áætluð afhending
togarans frá Vard-Aukra er um miðjan október og siglir skipið þá til
heimahafnar. Þar tekur Slippurinn Akureyri við því og settur verður um borð
vinnslubúnaður, sem þar verður smíðaður. Áætlað er að Harðabakur hefji veiðar í
byrjun nýs árs. Þetta kemur fram á heimasíðu Samherja.
Vikudagur.is 2 ágúst 2019.
2963. Harðbakur EA 3 á Pollinum.
2963. Harðbakur EA 3.
2963. Harðbakur EA 3.
2963. Harðbakur EA 3.
2963. Harðbakur EA 3 leggst við bryggju.
2963. Harðbakur EA 3 lagstur við bryggju á Akureyri. (C) Haukur Sigtryggur Valdimarsson.
Harðbakur
siglir til Akureyrar.
Harðbakur EA 3, hinn nýji togari
Útgerðarfélags Akureyringa, hefur verið afhentur eigendum sínum í Noregi.
Í kjölfarið á uppgjöri við Vard-Aukra skipasmíðastöðina var íslenski fáninn
dreginn að húni og gert var ráð fyrir að skipið sigli af stað til heimahafnar
sl þriðjudag. Áætlað er að siglingin heim taki um þrjá og hálfan
sólarhring. Skipstjóri á Harðbak er Hjörtur Valsson og yfirvélstjóri er
Friðrik Karlsson. Slippurinn á Akureyri tekur við skipinu þegar heim er
komið og settur verður vinnslubúnaður um borð. Stefnt er að
Harðabakur hefji veiðar í byrjun nýs árs, segir á vef Samherja.
Vikudagur.is 7 nóvember 2019.
10.11.2019 16:11
797. Straumnes ÍS 240. TFNK.
797. Straumnes ÍS 240. (C) Snorri Snorrason. Úr safni Atla Michelsen.
Straumnes ÍS 240 að landa síld, veit ekki hvar. Ljhósmyndari óþekktur.
Þrír glæsilegir vélbátar að Djúpi
Ísafirði, 28. des.
Þrír bátar komu til hafnar hér á Ísafirði nú um hátíðarnar, þar af eiga tveir
heimahöfn hér og einn í Hnífsdal. Tveir bátanna komu hingað á Þorláksmessukvöld
og höfðu þeir haft samflot alla Ieiðina. Voru það "Straumnes" og "Mímir."
Þetta eru 93 lesta stálbátar, nákvæmlega eins að stærð og útliti. Báðir eru
smíðaðir í Brandenburg skipasmíðastöðinni í A-Þýzkalandi, en það er borg
alllangt uppi í landi. Þaðan var bátunum fleytt niður til Stralsund og síðan
var þeim siglt til Kaupmannahafnar. Straumnes" verður gert út frá Ísafirði
en "Mímir" frá Hnífsdal. ,,Straumnes" er eign "Kögurs" h.f. og
er formaður félagsins Matthías Bjarnason hér á Ísafirði. Páll Pálsson
skipstjóri sigldi Straumnesi til landsins en skipstjóri verður Haukur Helgason
ungur maður héðan úr bænum. "Mímir er eign hlutafélagsins í Hnífsdal og er
Ingimundur Finnbjörnsson framkvæmdastjóri þess. Guðmundur Ingimarsson sigldi
bátnum til landsins, en skipstjóri verður Karl Sigurðsson í Hnífsdal. Ganghraði
bátanna er rúmlega 10 mílur og tók ferðin frá Kaupmannahöfn tæpa sex
sólarhringa. Reyndust bátarnir vel. Þeir eru búnir öllum nýjustu siglinga- og
fiskileitartækjum og munu hefja róðra næstu daga.
Þriðji báturinn sem hér um ræðir kom hingað í fyrradag. Er nafn hans "Guðbjörg".
Báturinn er byggður í Niendorf Ostsee í V-Þýzkalandi. Er þetta 76 smálesta
bátur smíðaður úr eik. Hann er eign h.f. Hrönn á Ísafirði og er
framkvæmdastjóri þess félags Guðmundur Guðmundsson skipstjóri hér í bæ. Sigldi
hann bátnum til landsins og gekk ferðin vel og reyndist báturinn ágætlega. Hann
er búinn nýjustu siglingatækjum af Simrad-gerð. Ásgeir Guðbjartsson verður
skipstjóri á þessum nýja báti og mun hann fara fyrsta róðurinn nú í kvöld.
Morgunblaðið. 29 desember 1959.
Líkan af HRB 46 smíðuðum í Brandenburg. (C) HRB.
Fyrirkomulagsteikning af HRB 46.
797. Sænes EA 75. (C) Vigfús Markússon. Brimbarinn.
100 tonna
skip í stað Sæness
Rán hf. á Dalvík hefur samið við sænska skipasmíðastöð um
smíði á 100 tonna skipi fyrir fyrirtækið. Rán gerir nú út tvo gamla báta, Sænes
og Sæljón og mun Sænes ganga upp í kaupverð á hinu nýja skipi en það er um 67
milljónir. Sænesið fæst metið á um 16 milljónir. Samningarnir voru gerðir með
fyrirvara um að lán fengist úr Fiskveiðasjóði. Lánið fékkst og er það 60 % af
kaupverði. Skip þetta var í smíðum fyrir annað fyrirtæki þegar Rán hf. gekk inn
í kaupin. Skipið átti upphaflega að vera búið til togveiða eingöngu en verður
nú búið til netaveiða og línuveiða að auki. Auk þess mun skipið stunda
djúprækjuveiðar.
Að sögn Gunnþórs Sveinbjörnssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins á að
afhendaskipið 20. júní. Það er 20 tonnum stærra en Sænes og yfirbyggt þannig að
með tilkomu þess aukast möguleikar til lengri veiðitúra auk þess sem það er
talið mun afkastameira við rækjuveiðarnar. Lest hins nýja skips verður
einangruð eins og frystilest en fyrst um sinn verður það þó ekki búið
frystitækjum. Í skipinu er 900 ha. vél og tvö sjálfstæð 10 tonna spil.
Dagur. 9 febrúar 1987.
07.11.2019 20:19
B. v. Ágúst GK 2.
Nýsköpunartogarinn Ágúst GK 2 var
smíðaður hjá Alexander Hall & Co Ltd í Aberdeen í Skotlandi árið 1947. Hét
fyrst Elliðaey VE 10 og var í eigu Bæjarútgerðar Vestmannaeyja h/f í
Vestmannaeyjum. 664 brl. 1.000 ha. 3 þennslu gufuvél. Smíðanúmer 717. Kom fyrst
til heimahafnar hinn 8 september sama ár. Togarinn var seldur 7 október árið
1953, Bæjarútgerð Hafnarfjarðar h/f í Hafnarfirði, fékk nafnið Ágúst GK 2. Togaranum
var lagt árið 1964 og var svo seldur sama ár, Minas Stakhakis og Vasilies Manousos
(Lindos Meffan Atlantiki Fishing) á Krít. Fékk nafnið X Filas (Sverðfiskurinn).
Skipið var lengt um 12 metra og einnig var sett 1.750 ha. Díesel vél í skipið. Ekki
veit ég um afdrif skipsins, en allar upplýsingar eru vel þegnar.
Heimild:
Upplýsingar um X Filas.
Tryggvi Sigurðsson.
B.v. Ágúst GK 2. á útleið frá Hafnarfirði. Ljósmyndari óþekktur.
Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar kaupir togarann Elliðaey
Kaupverðið
er 5,3 milljónir króna
Á aukafundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, sem haldinn var kl.
1.30 s. l. föstudag, voru samþykktir bráðabirgðasamningar þeir, sem gerðir voru
fyrir nokkru um kaup á togaranum Elliðaey. Kaupverðið er kr. 5,5 milljónir, en
frá því dragast kr. 200 þúsund, sem Bæjarútgerð Vestmannaeyja tekur þátt í
standsetningu skipsins. Raunverulegt kaupverð skipsins, í því ástandi, sem það
nú er í, er því kr. 5,3 milljónir. Hamar. 18 tbl. 4 október 1953. "Ágúst"
seldur fyrir 1,4 milljónir króna Togarinn Ágúst, eign Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, hefur
verið seldur til Grikklands fyrir 12 þúsund sterlingspund, eða rúmar 1,4
milljónir íslenzkra króna. Bráðabirgðasamningar hafa þegar verið undirritaðir
milli útgerðarinnar og kaupendanna, Minas Stahakis og Vasilies Manousos, en
þeir eru frá Pireus á Krít. Samkvæmt samningnum skal togarinn afhentur hinum
nýju eigendum innan mánaðar frá því að öll nauðsynleg leyfi hafa fengizt fyrir
sölunni. Þessir sömu Grikkir hafa einnig gert kauptilboð í togarann Sólborgu og
nemur það 14 þúsund pundum. Endanlegt svar hefur enn ekki fengizt við því
tilboði. Grikkirnir eru nú að leita fyrir sér með að ráða íslenzka sjómenn til
að sigla Ágústi til Grikklands. Ágúst var áður eign Vestmannaeyinga og hét þá
Elliðaey.
Að undanförnu hafa staðið yfir samningar á milli Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og
Bæjarútgerðar Vestmannaeyja, um sölu á togaranum Elliðaey til Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar. Var gengið frá bráðabirgðasamningi í því efni 20. sept. s. l. í
Vestmannaeyjum og mættu þar fyrir hönd Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar þeir Stefán
Jónsson, Ásgeir G. Stefánsson og Gunnlaugur Guðmundsson, einnig var Guðmundur
Gissurarson með í förinni. Vestmannaeyingar höfðu rétt til að ganga inn á
samninga þá, sem gerðfc1 voru til 1. okt., en skipið var flutt til Reykjavíkur
til botnskoðunar. "Þar sem Vestmahnaeyingar höfðu ekki neytt
forkaupsréttar síns fyrir tilskilinn tíma, var ekki annað eftir en að ganga frá
kaupunum á áðurgerðum samningsgrundvelli og var því haldinn fundur í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar, þar sem einróma var samþykkt að togarinn skyldi
keyptur og var jafnframt samþykkt heimild til handa bæjarstjóra að undirrita
samningana. Eins og áður er sagt, er togarinn keyptur í því ástandi, sem hann
er nú í og þarf talsvert mikið að gera við hann og það nokkru meira en sem muni
nema þeim kr. 200 þús., sem Bæjarútgerð Vestmannaeyja tekur þátt í
standsetningarkostnaði. Það má því búast við að skipið fari yfir 5,5 millj.
kr., þegar það verður tilbúið til veiða. Við þessi togarakaup er mjög lítil
útborgun eða um ½ milljón kr. og ætlar
Útvegsbankinn að lána Bæjarútgerðinni það fé. Einnig er von til að bankinn láni
fé til að standsetja skipið. Hér er því að langmestu leyti um yfirfærslu skulda
að ræða og eru sumar þeirra mjög hagstæðar eins og t. d. stofnlán o. fl.
Bæjarbúar fagna því að fá fleiri atvinnutæki í bæinn og vonandi fylgir gæfa og
gott gengi hinu nýja skipi Bæjarútgerðarinnar, svo að það megi verða til
eflingar og blessunar atvinnulífinu í bænum.
B.v. Ágúst GK 2 með trollið á síðunni. (C) Sigurgeir B Halldórsson.
B.v. Ágúst GK 2 með trollið á síðunni. (C) Sigurgeir B Halldórsson.
Útlitsteikning af b.v. Elliðaey VE 10 / Ágúst GK 2. Ég á þessa teikningu á pappír og hún er 2,40 cm. á lengdina og 1,10 ´cm. á hæðina. (C) Þórhallur S Gjöveraa.
B.v. Elliðaey VE 10, síðar Ágúst GK 2. Myndin er nú ekki nákvæm, allt of margir gluggar í brú togarans, en þetta er mjög góð mynd. (C) George Wiseman.
Morgunblaðið. 13 september 1964.
06.11.2019 12:49
Loftskeytaklefinn og fleira úr b. v. Röðli GK 518.
B.v. Röðull GK 518 var smíðaður hjá Cook Welton & Gemmell Ltd í Beverley á Englandi árið 1948 fyrir útgerðarfélagið Venus í Hafnarfirði. 680 brl. 1.000 ha. 3 þennslu gufuvél. Hann var fyrsti Nýsköpunartogarinn sem smíðaður var með bátapall. Röðull var einn af tíu togurum sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í Beverley, en af stærri gerðinni, hinir voru:
Fylkir RE 161. 677 brl.
Garðar Þorsteinsson GK 3. 677 brl.
Af minni gerðinnu voru:
Akurey RE 95. 655 brl.
Geir RE 241. 655 brl.
Röðull GK 518 var seldur í brotajárn til Englands og tekinn af íslenskri skipaskrá 6 desember árið 1974.
Nýsköpunartogarinn Röðull GK 518 við komuna til heimahafnar hinn 24 mars árið 1948. (C) G. Á.
Kaffivél úr Röðli GK.
04.11.2019 20:34
B. v. Íslendingur RE 120. LBKC / TFQL.
"Íslendingur"
sokkinn
Botnvörpuskipið Íslendingur sökk á Eiðisvík í fyrrinótt.
Hann hefir legið þar mannlaus í vetrarlagi að undanförnu, og varð ekki séð í
fyrradag, að hann væri farinn að þyngjast af sjó. Vita menn ekki, hvernig leki
hefir komið að honum svo skyndilega.
Vísir. 11 desember 1925.
Íslendingur RE 120 kominn á land eftir 17 ár á hafsbotni. Ljósmyndari óþekktur.
B.v. Íslendingur RE 73 eftir endurbygginguna. Mynd úr Víkingnum.
Íslendingur RE 73 upp í fjöru í Kleppsvíkinni í júní árið 1966. Ljósmyndari óþekktur.
Íslendingur RE 73 í fjörunni í Kleppsvíkinni. (C) Tryggvi Sigurðsson.
B.v.
Íslendingur RE 73
Nýlega er lokið algjörri endurbyggingu og breytingu á
togaranum Íslendingi RE 73. B.v. Íslendingur er byggður úr járni í Hull í
Englandi árið 1893 og hét þá Osprey, en var keyptur hingað til lands árið 1908
af Elíasi Stefánssyni útgerðarmanni í Reykjavík. Hinn 9. des. árið 1926, er
skipið lá í vetrarlægi á Eiðsvík við Reykjavík, kom af ókunnum orsökum
skyndilega leki að skipinu svo að það sökk. Lá skipið þar í 15 ár, eða til
ársins 1942, er rannsókn á flakinu leiddi í Ijós, að bolur skipsins var ekki
meira skemmdur en svo, að það var álitið svara kostnað að bjarga því og
endurbyggja. Tókst björgunin vel, en af ýmsum ástæðum gekk viðgerðin seint og
var ekki lokið fyrr en í marz-mánuði í ár. Eigandi skipsins er nú h.f.
Dieseltogarar í Reykjavík, en að því félagi standa m. a. þeir Stephan
Stephensen framkvæmdastjóri, Sveinbjörn Einarsson skipstjóri og Ágúst
Ingvarsson vélstjóri. Að björgun og endursmíði skipsins unnu ýmsar af
vélsmiðjunum og skipasmíðastöðvunum í Reykjavík, en aðallega Ágúst Ingvarsson
vélstjóri að allri járnsmíði og vélaniðursetningu. Einnig vélsmiðjan Bjarg og
Sigurður Einarsson og Loftur vélsmiðir. Sömuleiðis Vélsmiðjan Héðinn. Trésmíði
framkvæmdi skipasmíðastöð Magnúsar Guðmundssonar, en meirihlutann af
trésmíðinni framkvæmdu þeir Hákon Einarsson og Haraldur Guðmundsson
skipasmíðameistarar. En yfirumsjón og framkvæmd alla hafa þó haft tveir af
eigendum þess, nefnilega þeir Sveinbjörn og Ágúst, sem þar hafa leyst mikið
verk af hendi. Að umbyggingunni lokinni reyndust aðalmál skipsins:
Lengd 31.09 m.
Breidd 6.25 m.
Dýpt 2.92 m.
Stærð brúttó 146.11 rúmlestir.
Stærð undir þilfari 138.14 rúmlestir.
Stærð nettó 66.20 rúmlestir.
Við breytinguna hafði skipið stækkað um 3.47 rúmlestir brúttó. Aðalvél skipsins
er Fairbanks-Morse Dieselvél (amerísk), 500 hestöfl, í beinu sambandi við
skrúfuna. Mesti snúningshraði 400 á mínútu. Eyðir þá 0.38 lbs. á hestafl á
tíma. Olíugeymar rúma 21 tonn. Hjálparvélar eru tvær: Önnur 77 hestafla
Greyhound fyrir togvindu, og hin 20 hestafla R. A. Lister fyrir ljós, hita,
eldun. Fremst í skipinu er "lúkar" með lokrekkjum fyrir 10 manns, og
aftast "káeta" með 4 rekkjum, en úr henni er gengið í tvö herbergi, sitt
hvoru megin, og er annað þeirra fyrir stýrimann, en hitt fyrir 1. vélstjóra.
Aftast í reisninni, yfir káetu, er eldhúsið, og er þar rafmagnseldavél, smíðuð
af h.f. Rafha í Hafnarfirði. Fremst á reisninni er herbergi skipstjóra. Allar
vistarverur eru klæddar Masonite, útbúnar fataskápum m. a, raflýstar og með
rafmagnshitun. Fremst á reisninni er stýrishús og fyrir aftan það lítill
leiðarreikningsklefi, en innangengt úr honum niður í herbergi skipstjóra. Í
leiðarreikningsklefanum er komið fyrir, auk venjulegra leiðartækja, Hugh's
sjálfritandi bergmálsdýptarmæli, svo og talsendi og viðtæki landsímans, en í stýrishúsi
vökvastýri af gerðinni Steen & Kaufmann, Eimshorn. Svo má segja að skipið
sé allt saman endurnýjað, tréverk allt nýtt. Bolur skipsins allur hnoðaður upp.
Mikið sett í skipið af nýjum böndum, settur á skipið bakki, yfirbygging öll ný
og sett í það Dieselvélar, svo og allt skipið smíðað að nýju að innan.
Sjómannablaðið Víkingur. 5 tbl. 1 maí 1943.
31.10.2019 19:31
Reykjavíkurhöfn í dag.
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 í slippnum í dag.
29.10.2019 21:24
B. v. Goðanes NK 105 að landa afla sínum í gúanó.
B.v. Goðanes NK 105 að landa í gúanó. (C) Magnús Hermannsson.
Heimalöndun
togaranna
Það varð tilefni til verulegrar óánægju í bænum, að Egill
rauði skyldi ekki leggja afla sinn upp í heimahöfn nú síðast, eins og áformað
hafði verið, en ýmis atvik réðu því að frá því var horfið. Í fyrsla Iagi var
afli í minna lagi og því afar óhagstætt að sigla með hann svo langa leið, sem
um var að ræða. Í öðru, lagi var óttast um gæði fisksins, enda kom það á
daginn, að mikill hluti hans var ekki flökunarhæfur og enn meira hefði án efa
skemmst, ef siglt hefði verið alla leið til Norðfjarar. Í þriðja lagi stóð
fyrir dyrum skipstjóraskipti og var hinn nýji skipstjóri í Reykjavík. Við þetta
bættist svo það, að útgerðin berst nú mjög í bökkum fjárhagslega og við
ráðstöfun afla verður að taka mikið tyllit til hagsmuna útgerðarinnar. Sé það ekki
gert, getur það áður en varir, haft örlagaríkar afleiðingar. Það er eðlilegt,
eins og nú er ástatt með atvinnu í bænum, að það valdi vonbrigðum og óánægju
þegar vinna gengur mönnum úr greipum. En menn verða að setja sig inn l
krigumstæðurnar og gera sér Ijós þau atvik, sem valda viðburðanna rás. Menn
mega vera þess fullvissir, að forráðamenn togaranna, gera það ekki að gamni
sínu að láta skipin leggja upp annarsstaðar en hér. Heyrzt hafa raddir um það
að Egill rauði hafi gert lítið að því, að leggja, upp heima og hefir óspart
verið undir þær raddir ýtt af sumum. Fyrir því þykir mér hlýða að gera grein
fyrir þessum efnum, svo menn sjái hvernig í þessu liggur.
Sjálfir geta menn svo dæmt um það, hvort með sanngirni var til þess ætlast, að
um frekari heimalandanir hafi verið að ræða. Frá áramótum til 5. október hefir
Egill rauði landað innanlands 2.960 tonnum af ísfiski. Af þessu magni hafa 2.075
tonn verið lögð upp í Neskaupstað, en í öðrum höfnum 885 tonn, þar af voru
losuð á Eskifirði og Fáskrúðsfirði 198 tonn, vegna þess, að löndun fékkst ekki
í Neskaupstað, af því frystihúsin voru full. Fram að síðustu mánaðarmótum
hafði. Egill aðeins lagt á land á þessu ári 376 tonn utan þeirra hafna, sem hér
eru nefndar, eða sem svarar rúmlega einum farmi. Það virðist því ekki ástæða
til getsaka um að sneitt sé hjá löndun heima, enda hefir þvert á móti verið
landað heima þegar tök voru á og þá ekki alltaf farið eftir því, sem hagkvæmast
var útgerðinni. Síðasti farmur Egils lagði sig á rúmar 100 þúsund krónur. Að
sigla með hann hingað austur hefði haft í för með sér að minsta kosti 20 - 30
þúsund króna aukakostnað, og getur hver maður séð að frá sjónarmiði
útgerðarinnar var þetta frágangssök. Um Goðanes gegnir nokkru öðru máli. Það
hefir losað miklu meira af ísfiski sínum utan heimahafnar, en Egill. Alls hefir
Goðanes lagt upp innanlands á þessu ári 2.259 tonn af ísfiski þar af í
Neskaupstað 1.097 tonn, en 1.168 annarsstaðar. Auk þess hefir það lagt upp hér
heima einn góðan saltfiskfarm. Báðir togararnir hafa þá á þessu ári lagt upp í
bænum 3.172 tonn af ísfiski. Hve mikil vinnu,laun hafa verið greidd við löndun
og vinnslu á þeim afa, get ég ekki gízkað á, en væn fúlga hlýtur það að vera.
Hætt er við, að margir hefðu misst spón úr aski sínum, ef þessi afli hefði ekki
borizt á land hér. Það veldur vissum erfiðleikum með að fá afla heim, að nú um
þriggja mánaða skeið hefir aðeins annað skipið stundað ísfiskveiðar. Ef þau
hefðu bæði veitt í ís, var miklu hægara um vik, til dæmis að láta skipin leggja
upp heima til skiptis. En fullvíst má telja, að Goðanes leggi ekki upp meiri
afla hér á þessu ári, því þegar það kemur úr yfirstandandi Grænlandsferð,
liggur fyrir að skipið fari í lögboðna klössun og verður henni varla lokið fyrr
en um hátíðar. Við verðum því um skeið að láta okkur nægja útgerð eins togara
og vinnu við þann afla, sem hann kann að leggja hér á land. Ég hefi nú gert
grein fyrir þessum málum eins og þau liggja fyrir. Sjálfir verða lesendur að
beita dómgreind sinni til að dæma um það, hvort ástæða sé til að áfellast forráðamenn
Bæjarútgerðarinnar fyrir að hafa haldið illa á spilunum hvað heimalöndun snertir.
Austurland. 26 október 1952.
27.10.2019 11:19
1137. Barði NK 120 í slipp í Neskaupstað.
Barði NK í slipp Dráttarbrautarinnar hf í Neskaupstað. (C) Guðmundur Sveinsson.
Barði NK að koma til löndunar í Neskaupstað með fullfermi. (C) Guðmundur Sveinsson.
Barði NK 120
í slipp
Barði kom úr veiðiferð á föstudag í fyrri viku með um 114
tonn. Hefur þá skipið fengið um 2.200 tonn síðan það hóf veiðar um miðjan
febrúar. Skipið hefur ekki farið út aftur eftir losun fyrir helgina, vegna
viðgerða og lagfæringa. Í gær fór það í slipp til botnhreinsunar og málunar og
er stærsta skip, sem tekið hefur verið í slipp í Neskaupstað.
Að því er verulegt hagræði og sparnaður fyrir útgerðina, að hægt er að taka
Barða hér í slipp. Fyrir áhöfnina er það líka miklu hagkvæmara og
Dráttarbrautin fær við þetta aukin viðskipti. Sem sagt: Allir aðilar hagnast á
þessu og er það gott. Barði fer væntanlega til veiða aftur um miðja næstu viku.
Austurland. 24 september 1971.
23.10.2019 18:00
904. Vísir BA 44.
Vélbáturinn Vísir BA 44. Ljósmyndari óþekktur.
Nýr bátur
Hlutafélagið Fram í Hnífsdal hefir eignazt nýjan bát. Heitir
hann Jóakim Pálsson og er 15,75 smálestir. Báturinn er smíðaður í Skipasmiðastöð
Marzeliusar Bernharðssonar og er hið myndarlegasta skip. Framkvæmdastjóri
félagsins er Ingimar Finnbjörnsson. Hafa Hnífsdælingar nú fetað myndarlega í
fótspor Ísfirðinga um að koma sér upp nýjum og vönduðum fiskiflota.
Skutull. 27 febrúar 1943.
Vélbáturinn Vísir HU 10 við bryggju á Skagaströnd. (C) Stefán Jósepsson.
Þriggja
rækjubáta með sex mönnum saknað
Óttast er um afdrif þriggja rækjubáta, tveggja frá Ísafirði
og eins frá Bíldudal. Tveir skipverjar eru á hverjum báti. Í gærkvöldi fannst
gúmbátur af einum bátanna við Skarð á Snæfjallaströnd og stíuborð fundust við
Auðkúlu í Arnarfirði, sem talið er að séu af Bíldudalsbátnum. Bátarnir, sem
saknað er, eru Vísir BA 44,16 tonna eikarbátur frá Bíldudal. Gullfaxi ÍS 594,19
tonna eikarbátur frá Ísafirði, og Eiríkur Finnsson ÍS 26. 17 tonna eikarbátur
frá Ísafirði. Ekki er hægt að greina frá nöfnum mannanna sex, sem eru á
bátunum, að svo stöddu.
Rækjubátar réru frá Ísafirði í sæmilegu veðri í gærmorgun og fóru bátarnir, sem
saknað er frá Ísafirði, til veiða í innanverðu Djúpi. Upp úr hádegi var skollið
á aftakaveður af suðvestri. Um klukkan 15 voru bátarnir beðnir um að tilkynna
sig og þá kom í ljós, að tveggja báta, Gullfaxa og Eiríks Finnssonar, var
saknað. Síðast er vitað um Gullfaxa úti af Arnarnesi á leið til Ísafiarðar, og
um Eirík Finnsson þar sem hann var að hífa innan við Ögurhólma skömmu eftir
hádegi, en hafði ekki leitað vars. Þrír línubátar frá Ísafirði fóru til
aðstoðar og leitar fyrir klukkan 3 í gærdag og björgunarsveitarmenn frá
Súðavík, Ísafirði, Hnífsdal og Bolungavík voru tilbúnir. Línubáturinn Guðný fór
með átta björgunarsveitarmenn og kom þeim í land á Sandeyri á Snæfjallaströnd
við erfiðar aðstæður. Þeir munu ganga ströndina í dag og bændur á
Snæfjallaströnd byrjuðu leit á landi þegar síðdegis í gær og menn frá Unaðsdal
fundu í gærkvöldi gúmbát, sem talinn er vera úr Eiríki Finnssyni, við Skarð á
Snæfjallaströnd. Í dag verður leitað á sjó, landi og úr lofti ef veður leyfir.
Fyrrnefndar björgunarsveitir munu hafa aðstöðu í húsi SVFÍ í Bolungarvík, en í
gær tóku auk fyrrnefndra aðila þátt í leitinni starfsmenn Slysavarnafélagsins í
Reykjavík, Landhelgisgæzlu og Ísafjarðarradíós. Upp úr hádegi var farið að
óttast um rækjubátinn Vísi frá Bíldudal, Frigg BA var þá inni á Bíldudal og var
strax beðinn um að fara og svipast um eftir bátnum. Þá var varðskipi, sem var
miðsvæðis úti af Vestfjörðum, snúið við og stefnt í Arnarfjörð. Það hafði áður
verið beðið um aðstoð vegna Ísafjarðarbátanna, en snúið við þar sem færri skip
voru til leitar í Arnarfirði. Vísir hafði verið að hífa fyrir innan Gíslasker
þegar síðast fréttist, en bátarnir Vísir og Pílot BA 6 höfðu haft samband sín á
milli. Varðskipið fór inn fyrir Gíslasker, inn á Dynjandisvog og Borgarfjörð,
en sá ekki neinn bát. Hins vegar fannst ómerktur rækjukassi og lestarborð út af
bænum Auðkúlu. Bændur á Auðkúlu fundu síðan í gærkvöldi grámáluð stíuborð með
rauðum röndum, sem talið var að væru frá Vísi. Björgunarsveitarmenn fara með
varðskipi í dag og taka land á Rafnseyri til þess að leita fjörur við
norðanverðan Arnarfjörð.
Morgunblaðið. 26 febrúar 1980.
Sjómennirnir
taldir af
19 börn misstu feður sína
Sjómennirnir sex af vestfirsku rækjubátunum þremur sem
saknað var á mánudag eru nú taldir af og formlegri leit hætt í Ísafjarðardjúpi
og Arnarfirði. Flugvél frá flugfélaginu Örnum flaug leitarflug í gær án
árangurs, en næstu daga verður gengið á fjörur eftir því sem aðstæður leyfa.
Vitað er um flökin af Gullfaxa og Eiríki Finnssyni á 50 og 36 faðma dýpi skammt
norður af Vigur og brak hefur fundist úr Vísi.
Með Gullfaxa fórust bræðurnir Ólafur S. Össurarson og Valdimar Þ. Össurarson
Ísafirði. Ólafur var 48 ára gamall, kvæntur og þriggja barna faðir.
Valdimar var 40 ára, kvæntur og átti fjóra syni.
Með Vísi fórust Pétur Valgarð Jóhannsson og Hjálmar Einarsson frá Bíldudal.
Pétur var 44 ára, kvæntur og fimm barna faðir.
Hjálmar var 36 ára, kvæntur og fjögurra barna faðir, en hann átti einnig
stjúpbarn.
Með Eiríki Finnssyni fórust Haukur Böðvarsson og Daníel Jóhannsson frá
Ísafirði. Haukur var 31 árs og ókvæntur en Daníel var 35 ára, kvæntur og tveggja
barna faðir.
19 börn urðu föðurlaus þegar þessir þrír bátar fórust.
Morgunblaðið. 28 febrúar 1980.
17.10.2019 19:29
1277. Ljósafell SU 70 að landa afla sínum í Reykjavíkurhöfn.
1277. Ljósafell SU 70 í Reykjavíkurhöfn. (C) Þórhallur S Gjöveraa. 4 október 2019.
Kaupfélagið hefur frá upphafi haft forustu
í fiskvinnslu og útgerð og tryggt atvinnu Viðtalið við Pál Jónsson kaupfélagsstjóra á Fáskrúðsfirði
Fáskrúðsfjörður er einn Austfjarða og er bæði langur og
mjór. Skrúður, vakir í fjarðarmynninu norðanmegin, ábúðarfullur og fagur, og
það virðist óendanlega langt að aka inn Skriðurnar eftir brattri
fjallshliðinni, fram hjá Kolfreyjustað, þar sem hann Páll Ólafsson fæddist og
inn þar sem heitir Búðir, en svo nefnist 700 manna þorp á Fáskrúðsfirði. Innar
er skógivaxinn dalbotn, djúpur og friðsæll, en það stingur í stúf við
brimsjóinn úti við Skrúð. Talið er að verzlun hafi verið stunduð lengi i
Fáskrúðsfirði, og þar hefur ávallt verið útgerð. Verzlun hófst þar árið 1890 og
í eina tíð var staðurinn mikil bækistöð franskra skútumanna og er
Fáskrúðsfjarðarfranskan ef til vill bezti minnisvarðinn um það.
Fáskrúðsfirðingar og Flandrarar skópu nýtt tungumál, sem raunverulega var hægt
að nota í mannlegum samskiptum. Frakkar reistu hér sjúkrahús og kapellu og
gerðu sér kirkjugarð fyrir þá sem féllu. En síðan er mikið vatn runnið til
sjávar. Nú talar enginn frönsku á Fáskrúðsfirði, en lífið heldur áfram og við
finnum að það er ekki laust við að sérstakur lífsstíll hafi fest hér rætur í
þröngum firðinum, þótt ekki sé lengur töluð franska yfir búðarborðið eða á
götunum.
Timinn kynnir að þessu sinni Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, en kaupfélagið þar, er
eitt þeirra kaupfélaga, sem neyðzt hafa til djarfra fjárfestinga á stundum, til
þess að fólkið í firðinum mætti hafa í sig og á, hefur með öðrum orðum haft
forystu í atvinnulífi staðarins. Fyrir fjórum árum kom hér ötull
kaupfélagsstjóri, vestan frá Snæfellsnesi, Páll Jónsson, og það er mál manna,
að hann hafi reynzt réttur maður á réttum stað, því að eftir erfið ár og
samdrátt á öllum sviðum, er nú blómleg verzlun á Fáskrúðsfirði og næg atvinna
er handa öllum, sem vilja vinnu. Timinn átti stutt viðtal við Pál Jónsson,
kaupfélagsstjóra og sagðist honum frá á þessa leið um kaupfélagið og útgerðina:
- Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga mun hafa verið stofnað árið 1933 og er félagssvæði
þess Fáskrúðsfjörður allur og fáeinir bæir í Reyðarfirði, sunnanverðum.
Kaupfélagið var einkum bændaverzlun og afurðasala, eins og þá tíðkaðist, enda
kaupfélögin einkum stofnuð til að tryggja félagsmönnum sínum hagstæða verzlun.
Hér á fjörðunum var þá mun meiri sveitabúskapur, en núna er, en þó er hér
talsverður landbúnaður og slátraði kaupfélagið, t.d. um 5000 fjár í
sláturhúsinu á síðasta hausti. Þá er nokkur mjólkurframleiðsla, en mjólk er
lögð inn hjá mjólkurbúinu á Egilsstöðum. Búskapur hefur þó ávallt verið í
nokkrum tenglsum við sjóinn hér á fjörðunum, og bændur hafa jafnframt stundð
handfæraveiðar og minniháttar útgerð og er svo enn þann dag í dag. Róið er frá
Eyri og Vattarnesmenn róa og eins hann Guðjón á Kolmúla, en þótt hér áður og
fyrr væri sjórinn nytjaður mest af bændum og vinnuhjúum þeirra, er þetta óvíða
svo, enn þann dag í dag, nema helzt hér á Austfjörðum.
Fiskverkun hefur ávallt verið talsverður þáttur í atvinnu manna hér og það eru
áratugir síðan kaupfélagið hóf beina þátttöku í vinnslu sjávarafla, þótt hins
vegar sé verzlunin, sem fyrr aðalstarfið. Hér munu vera um 300 félagsmenn í
kaupfélaginu og kaupfélagsverzlunin mun fara með um 70% af viðskiptum hér. Var
heildarvörusala í kaupfélaginu um 30 milljónir króna á síðasta ári. Er þetta að
langmestu leyti almenn verzlun við fólkið í héraðinu og við rekum tvær búðir,
sláturhús, gistihús, og seljum oliur og bensín. Hjá kaupfélaginu starfa nú um
20 manns. Kaupfélagið er aðaleigandi og rekur Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar hf.
og þá um leið fiskimjölsverksmiðju og útgerð tveggja skipa, 180 tonna
stálskips., sem ber nafnið Hoffell og skuttogarann Ljósafell, sem smíðaður var í
Japan og kom til landsins 30. maí síðastliðinn. Hefur togarinn síðan aflað vel
og hefur landað hér á Fáskrúðsfirði, þar sem aflinn er hraðfrystur og unninn.
Togarinn hefur reynzt mjög dýrmætt atvinnutæki og hefur undanfarna tvo mánuði
lagt hér á land um 880 lestir af fiski, en þessi mikli afli gjörbreytir
auðvitað málunum hér, þar eð hráefnisöflun var mikið vandamál hjá okkur og tímabundið
atvinnuleysi gat verið hér á stundum. Skuttogarinn kostar 140-150 milljónir
króna, sem er mikið fé fyrir ekki stærra félag, enda varð að selja ágætt skip, Búðafell,
til þess að hægt væri að leggja fram fé til smíða togarans, en auðvitað munar
mest um forgöngu ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna í málinu, en þeir
lögðu sem kunnugt er grundvöll að eflingu togaraútgerðarinnar.
Kaupfélagið rekur eitt elzta hraðfrystihús landsins og voru framleiðsluafköstin
árið 1970 og 1971 um 30.000 kassar af hraðfrystum fiski.
Árið 1972 minnkaði
þessi framleiðsla verulega þar eð við urðum að selja Búðafellið en í júlílok
vorum við búnir að frysta um 25.000 kassa, svo heildarframleiðslan mun aukast
verulega á þessu ári. Hjá frystihúsinu starfa um 70 manns og má segja að nokkur
skortur sé á vinnuafli þessa síðustu daga, vegna togaraaflans. Eins og áður
sagði, er hraðfrystihúsið okkar eitt af þeim elztu, sem fyrir eru á landinu.
Þar hefur verið unnið við erfið og kostnaðarsöm vinnuskilyrði, þar sem erfitt
er að koma við fullkomnu hreinlæti og nútíma hagræðingu. Því var hins vegar svo
farið, að ekki var hægt að hugleiða endurbyggingu, þar er reksturinn var
bágborinn og stöðvaðist alveg um tíma. Nú er hins vegar kominn fullur skriður á
hraðfrystihúsmálið. Unnið hefur verið að undirbúningi um alllangt skeið, bæði
af tæknimönnum og svo forráðamönnum hér á staðnum og er nú búið að teikna nýja
vinnslueiningu, þ.e. hraðfrystihús, fiskmóttöku vélasal og frostgeymslu í 2.200
fermetra stálgrindarhúsi, sem reist verður á hafnarbakkanum, eða á hafsbotni,
ef svo má orða það, en það þýðir að ekki þarf að aka fiskinum frá bátunum, því
að þeir landa beint í fiskmóttökuna og útskipun á frosnum fiski verður beint úr
geymslunum í skip. Nýja hraðfrystihúsið teiknuðu þeir Örn Baldvinsson og Karl
Bjarnason og verður það stálgrindahús og allt reist úr viðhaldsfríu efni.
Byrjað er að steypa undirstöður fyrir húsið sem standa mun á steyptum staurum,
sem reknir verða í fjöruborðið. Útboði er lokið og verður innan skamms tekin
ákvörðun um það, hverjum verður falin smiði stálgrindahússins.
Við hér bindum að sjálfsögðu miklar vonir við þetta nýja hraðfrystihús og
vinnslueiningu og erum bjartsýnir á rekstur þess. Afkastageta hússins verður 40
tonn á 10 klukkutímum, en það er hæfilegt til að taka á móti afla af 2-3
skuttogurum, eins og hann er núna. Hraðfrystihúsið rekur fiskimjölsverksmiðju,
sem tók á móti 13.500 tonnum á síðustu loðnuvertið. Þar af voru fryst um 400
tonn af loðnunni, hitt fór í bræðslu. Nú er verið að bæta löndunaraðstöðuna hér
og gerum við ráð fyrir að geta brætt svolítið meira á næstu vertið, en
verksmiðjan bræðir 200 tonn á sólarhring. Það, sem við beinum orkunni að nú, er
að auka þróarrýmið, en á síðustu vertið vorum við með loðnu hreint út um allan
bæ, en það er að sjálfsögðu kostnaðarsamara, en að geyma hana á hentugu
löndunarplani. Framleiðsluverðmæti fiskvinnslu okkar og
fiskimjölsverksmiðjunnar voru á árinu 1972 milli 70 og 80 milljónir króna, en
við erum þegar komnir á annað hundrað milljón krónur á þessu ári, enda berst
stöðugt fiskur að hér á Fáskrúðsfirði, bæði af togaranum og bátnum og svo er
aragrúi smábáta að veiðum hér og leggur upp aflann hjá Hraðfrystihúsinu, segir
Páll Jónsson, kaupfélagsstjóri að lokum. Sem fram kemur í þessu stutta spjalli,
þá snúast hjólin hratt hjá þeim á Fáskrúðsfirði. Meira að segja kominn togari
frá Japan og verkfræðingar og tæknimenn rýna í reislur og kvarða til að kanna
sjávarbotn. Þeim sem kunnugir eru atvinnuástandi á Fáskrúðsfirði fyrir aðeins
fáeinum árum, sem og öðrum afskekktum fjörðum, er það ljóst, að mikil breyting
hefur orðið á til hins betra. Sumt vilja menn og eiga að þakka breyttri
stjórnarstefnu, alhliða sókn í atvinnulífi, en samt má ekki ganga framhjá
dugnaði Fáskrúðsfirðinga sjálfra, sem lagt hafa nótt við dag, til að endurreisa
atvinnulíf staðarins og skapa nýja lífstrú í hinum langa firði.
Tíminn. 19 ágúst 1973.